Skólar búa námsfólk misvel undir háskóla 24. júní 2010 06:00 Viðhorf nemenda til þess hvernig framhaldsskólarnir skila þeim í háskóla er mismunandi eftir skólum. Mest er ánægjan með kennsluna í MA.fréttablaðið/valli
Nemendur úr framhaldsskólum telja sig misvel búna undir háskólanám eftir því í hvaða skóla þeir stunduðu nám. Nokkrir skólar skera sig úr og nemendur þeirra virðast betur undirbúnir. Þetta kemur fram í könnun sem Háskóli Íslands vann í samvinnu við Stúdentaráð. Um nokkra hríð hafa þær raddir heyrst úr háskólanum að nemendur komi afar misvel undirbúnir upp úr framhaldsskólum. Skýrslan rennir stoðum undir þá fullyrðingu. Mjög mismunandi er eftir skólum hve vel nemendur telja sig undirbúna. Líkt og sést hér fyrir ofan eru 98 prósent nemenda Menntaskólans á Akureyri mjög eða frekar sammála þeirri fullyrðingu að námið í framhaldsskóla hafi verið góður undirbúningur fyrir Háskóla Íslands. Einungis 38,1 prósent nemenda Framhaldsskólans í Vestmannaeyjum getur tekið undir þá fullyrðingu á sama hátt. Þá virðast nemendur missáttir við enskukennslu í skólum sínum. Um og yfir 80 prósent nemenda MA, MR og Menntaskólans Hraðbrautar eiga gott með að tileinka sér námsefni á ensku á fyrsta ári í HÍ og rúmt 71 prósent nemenda Versló. Meðaltalið er 64,2 prósent. Helmingur nemenda Keilis á hins vegar erfitt með enskuna. Hið sama á við þegar kemur að stærðfræði, en 82,9 prósent MR-inga eru mjög eða frekar sammála því að undirbúningur í stærðfræði hafi verið fullnægjandi. Rúmlega 72 prósent MA-inga eru sama sinnis og 76,4 prósent nemenda úr Menntaskólanum Hraðbraut. Könnunin var netkönnun og alls tók 1.391 nemandi þátt í henni. Konur voru mun fleiri svarendur en karlar, 1.019, eða 73,3 prósent, á móti 372, eða 26,7 prósentum. Athygli er vakin á því að mismikil svörun var eftir skólum. Úr þeim minnstu svöruðu 9 til 17 nemendur, en vel á annað hundrað nemendur úr stærstu skólunum svöruðu spurningunum. kolbeinn@frettabladid.is
Mest lesið „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Möguleiki á að úrslit ráðist ekki fyrr en í næstu viku Erlent Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Innlent Bókun 35 útskýrð á mannamáli Innlent Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta Innlent Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Hverjir tala við mömmu mína?“ Innlent Munurinn minnkar í nýrri spá Erlent Fleiri fréttir „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sjá meira