Málning skemmir bíla á Suðurlandsvegi Boði Logason skrifar 24. júní 2010 14:15 Bíllinn hans Smára er illa farinn eftir málninguna. Myndir/Smári Örn „
Við erum hérna þrír ökumenn og erum alveg gáttaðir," segir Smári Örn Árnason sem var að keyra um Suðurlandsveginn í átt að Selfossi í dag þegar hann keyrið í málningu sem slettist úr fötu af veginum skömmu áður hann kom að Litlu-Kaffistofunni. Smári Örn segir að bíllinn hans sé óökufær og hann sé búinn að bíða eftir lögreglunni í tvo klukkutíma. „Ég var bara að keyra og held að bíllinn fyrir framan mig sé að fara taka vinstribeygju og tek fram úr honum hægramegin. Um leið og ég geri það, fæ ég bara gusuna yfir bílinn minn. Þegar lögreglan kemur þá mun hún setja mig í akstursbann, því það sést ekki út um gluggann og bíllinn hefur orðið fyrir miklu tjóni." Hann hefur ásamt öðrum ökumönnum sem lentu í sama óhappi beðið eftir lögreglunni í tvo klukkutíma. „Ég hringdi í lögregluna og fékk þau svör að þetta væri á okkar ábyrgð. Ekkert af okkur er sátt við þær skýringar lögreglunnar að við þurfum hugsanlega að borga tjónið sjálf, það kemur bara ekki til greina. Ef þú kæmir hingað uppeftir myndir þú strax skilja mig, bíllinn er allur hvítur."Eins og sést hafa bílarnir orðið fyrir miklu tjóni eftir málninguna sem var á veginumHann segist ekki vita hvers vegna málningin sé á veginum. „Þetta er líklegast frá einhverjum einkaaðila sem hefur misst þetta á veginn." Auk Smára eru að minnsta kosti þrír bílar sem hafa orðið fyrir miklu tjóni. „Við erum þau einu sem nennum að bíða ennþá eftir lögreglunni, hinir eru bara farnir, enda beðið í tvo klukkutíma." Smári kemst hvorki lönd né strönd þar sem bíllinn er allur hvítur. „Ég var bara heppinn að láta ekki rúðuþurrkurnar á þegar ég fékk málninguna á framrúðuna."
Mest lesið Skotvopnin reyndust leikfangabyssur Innlent Viðræður við Íran hefjist á morgun Erlent Miðaði byssu á annan mann Innlent Tveir lagðir við gangstéttina Innlent Sárt að geta ekki sagt ömmu sinni frá sakleysi sínu Innlent Játaði að hafa flutt líkið í ferðatösku Erlent Siggi stormur sár en dregur ekki í land Innlent „Þetta voru þrjátíu til sextíu sekúndur og allt húsið var að brenna“ Innlent Guðmundur Felix kominn með krabbamein Innlent Knapi datt af baki Innlent Fleiri fréttir Skotvopnin reyndust leikfangabyssur Meirihluti hlynntur samfélagsmiðlabanni unglinga Knapi datt af baki Miðaði byssu á annan mann Tveir lagðir við gangstéttina Enn brotist inn í miðbænum „Þetta voru þrjátíu til sextíu sekúndur og allt húsið var að brenna“ Fundu byssur í bílum og handtóku fimm Greinir á við kjósendur sína Maður á sjötugsaldri kýldi konu til blóðs í miðbænum Þrír handteknir eftir átök í heimahúsi Sexan millilendir aftur í Reykjavík Siggi stormur sár en dregur ekki í land Sveitarstjóri hefur miklar áhyggjur af ástandi Vestfjarðavegar Grunaður um sölu fíkniefna á Þjóðhátíð Efnahags- og Evrópumál, hvalveiðar og laxeldi á landi á Sprengisandi Handtóku níu og nutu liðsinnis sérsveitar vegna staks eggvopns Sárt að geta ekki sagt ömmu sinni frá sakleysi sínu Myndir: Heimilisfólk komst út heilt á húfi Sumarhús við Þingvallavatn eyðilagðist í eldsvoða Tap vegna ótímabærra veðurspáa hlaupi á milljónum Lét lögreglu fá rauðtússaðan miða: „Ekki einhverjir fylliraftar innan úr miðborg Reykjavíkur“ Gekk um með barefli öskrandi og ógnaði Minkur í Vestmannaeyjum tilkynntur til Mosfellsbæjar Gagnrýna meðferð lögreglu á áhöfninni Hvorki tilkynnt um kynferðisbrot né líkamsárás fyrstu nóttina Líður eins og Gísli á Uppsölum sé kominn heim Slasaðist á fæti uppi á hálendi Veðrið „eins og eftir pöntun“ Guðmundur Felix kominn með krabbamein Sjá meira