Fischer grafinn upp á næstu dögum 24. júní 2010 19:51 Aðstandendur og vinir Bobby Fischers við leiði hans í mars 2008. Lengst til hægri sést skákmeistarinn Boris Spassky. Mynd/Pjetur
Undirbúningur þess að grafa upp lík skákmeistarans Bobby Fischers er hafinn. Tjaldað verður yfir gröfina meðan hún verður opnuð og lífsýni sótt. Þetta er gert til sannreyna kröfur í faðernismáli gegn dánarbúi Fischers. Verkið verður unnið undir stjórn sýslumannsins í Árnessýslu, Ólafs Helga Kjartanssonar, en sjálfur mætti hann ásamt lögreglu fyrr í vikunni í kirkjugarðinn að Laugardælum til að kanna aðstæður. Fréttir af þessum áformum hafa orðið til þess að auka enn heimsóknir að leiðinu en allt frá því Fischer var grafinn þarna hafa gestakomur verið tíðar. „Það er náttúrulega misjafnt. Stundum kemur enginn og stundum koma tvær til þrjár rútur á dag," segir Haraldur Þórarinsson, staðarhaldari á Laugardælum, og bætir við að eftir að fréttir bárust af því að grafa ætti hann upp hafi fleiri Íslendingar komið að leiðinu. Haraldur tók sjálfur þátt í að jarðsetja Fischer með leynd í janúar 2008. Hann segir ekki alla hrifna af því að friðhelgi grafreitsins verði raskað. „Það hefur verið talað um að menn séu nokkuð friðhelgir þegar þeir eru komnir inn í kirkjugarðinn. Mér finnst að það þurfi ríkar ástæður til að grafa menn upp en svona er þetta og það verður að hafa sinn gang," segir Haraldur. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu er verkáætlun farin að mótast. Gert er ráð fyrir að tjaldað verði yfir leiðið og að auk sýslumanns verði viðstaddir sóknarprestur, læknir, réttarmeinafræðingur, lögmenn og lögreglumenn sem munu girða svæðið af. Ekki er talin þörf á að flytja líkið af staðnum heldur er stefnt að því að lífsýni verður náð undir tjaldinu og vonast til að það taki innan við tvær klukkustundir.
Mest lesið „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Möguleiki á að úrslit ráðist ekki fyrr en í næstu viku Erlent Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Innlent Bókun 35 útskýrð á mannamáli Innlent Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta Innlent Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Hverjir tala við mömmu mína?“ Innlent Munurinn minnkar í nýrri spá Erlent Fleiri fréttir „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sjá meira