Innlent

Óveður undir Eyjafjöllum

Undir Eyjafjöllum. Séð frá þjóðveginum.
Undir Eyjafjöllum. Séð frá þjóðveginum. Mynd/GVA
Vegagerðin varar vegfarendur við miklu hvassviðri á Suðurlandi og Reykjanesi. Um miðjan dag í dag gæti verið varasamt að vera á ferð undir Hafnarfjalli, á Kjalanesi, á Reykjanesbraut og undir Eyjafjöllum en þar er óveður, að fram kemur í tilkynningu.

Veðurstofa Íslands vekur athygli á því að nú er stormur í aðsigi. Eftir hádegi verður austan 20-28 metrar á sekúndu sunnan- og suðvestanlands og enn hvassari hviður við fjöll á því svæði, víða yfir 40 metrar á sekúndu. Einnig verður vætusamt og búist er við mikilli rigningu Suðaustanlands í kvöld. Norðanlands verður heldur hægari vindur, en þó hvasst.

Þá kemur fram í tilkynningu Vegagerðarinnar að á Vesturlandi eru hálkublettir á Holtavörðuheiði, en aðrar leiðir eru auðar. Á Vestfjörðum er flughált á Hrafnseyrarheiði, hálka á Steingrímsfjarðarheiði en hálkublettir um Þröskulda, á Dynjandisheiði, Mikladal og Hálfdán.

Aðalleiðir eru auðar á Norðurlandi allt austur fyrir Mývatn en hálkublettir er yfir Mývatnsöræfi og hálka á Möðrudalsöræfum. Á Austurlandi eru hálkublettir á Vopnafjarðarheiði og Fjarðarheiði en aðrar leiðir greiðfærar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×