Innlent

Móta þarf stefnu til að draga úr fátækt íslenskra barna

Hátt í 700 manns sóttu um mataraðstoð hjá Mæðrastyrksnefnd og Fjölskylduhjálp í dag. Breskur sérfræðingur í barnafátækt segir mikilvægt að stjórnvöld móti stefnu sem styður við börn sem búa í fátækt.

Eitt af hverjum tíu börnum á Íslandi tilheyrir fjölskyldu sem er undir lágtekjumörkum samkvæmt rannsóknum Hagstofunnar. Þær upplýsingar fengust hjá Mæðrastyrksnefnd nú seinnipartinn að 300 fjölskyldur hafi leitað þangað í dag. Um 360 sóttu aðstoð til Fjölskylduhjálparinnar. Er þetta talinn mikill fjöldi miðað við að nú er fyrsti dagur mánaðarins.

Dr. Tess Ridge, einn helsti sérfræðingur Breta á sviði barnafátæktar er stödd hér á landi og átti í dag fund með starfsmönnum í félagsmálaráðuneytinu.

„Rannsóknir sýna að börn hafa miklar áhyggjur af fjárráðum fjölskyldunnar, þau hafa áhyggjur af foreldrum sínum, þau hafa áhyggjur af að það sé ekki nóg til fyrir þau og að fjölskyldan hafi ekki næga peninga. Þau hafa áhyggjur af að geta ekki tekið þátt í ýmsu sem vinir þeirra og jafningjar geta. Þau hafa áhyggjur af lífi sínu almennt og börn fara leynt með slíkt. Þau hafa áhyggjur af að vera öðruvísi," segir Tess.

Mikilvægt sé að stjórnvöld móti stefnu sem dragi úr barnafátækt og áhrifum hennar. „Það verður því að grípa til aðgerða til að styðja börnin sjálf, það þarf að tryggja að þau geti tekið þátt í hlutum og séu ekki útilokuð, að þau geti tekið þátt í því sama og önnur börn. Og svo eru ýmsar aðgerðir sem þurfa að miðast við að styðja foreldra þeirra, hvort sem þeir hafa vinnu

eða ekki," segir Tess.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×