Innlent

Tvöhundruð manns vilja fá endurgreitt frá meintri svikamyllu

Um tvö hundruð fjárfesta leita nú allra leiða til þess að endurheimta fé sem þeir töpuðu í meintu svikamyllunni Finanzas Forex.

Samkvæmt lögmanni hópsins þá hyggjast fjárfestarnir leggja fram kröfur sínar um endurheimtur til saksóknara í Flórída, sem hefur gert nokkurn hluta  eigna finanzas forex upptæka en fyrirtækið sætir rannsókn fyrir fjársvik þar í landi.

Lögmaðurinn, sem hefur átt í samskiptum við saksóknarann í Flórída, bendir á að fjárfestar verði að leggja fram kröfur sínar fyrir 15. nóvember næstkomandi, kjósi þeir að gera kröfu til saksóknara.

Á þessu stig er ómögulegt að segja til um hverjar endurheimturnar geti orðið með þessari leið. Fjárfestarnir vonast þó til að unnt sé að endurheimta fjármunina einnig með öðrum leiðum.

RÚV greindi frá því í gær að starfsemin sem virðist vera byggð á svikum, hefði haft aðstöðu hér á landi. Meðal annars störfuðu þar nokkrir einstaklingar sem virðast hafa séð um daglegan rekstur félagsins.

Um þúsund manns létu glepjast af meintu svikamyllunni og er talið að heildartjónið sé að minnsta kosti einn milljarður.

Málið er ekki til rannsóknar hjá lögreglunni en FME áréttaði  fyrir um tveimur árum síðan að félagið væri ekki með starfsleyfi hér landi. Forsprakki félagsins mun vera frá Spáni en félagið er skráð í Panama.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×