Innlent

SUSarar vilja eyða óvssu um kvótann

Jón Hákon Halldórsson skrifar
SUSarar telja hagsmunum þjóðarinnar sé best borgið með því að viðurkenna einstaklingseignarréttinn á kvótanum. Mynd/ Vilhelm.
SUSarar telja hagsmunum þjóðarinnar sé best borgið með því að viðurkenna einstaklingseignarréttinn á kvótanum. Mynd/ Vilhelm.
Mikilvægt er að eyða þeirri pólitísku óvissu sem gildir um eignarrétt yfir auðlindum sjávar, segir Samband ungra sjálfstæðismanna í ályktun sem stjórn sambandsins sendi frá sér í dag.

„Það er löngu tímabært að stjórnmálamenn og almenningur viðurkenni að einstaklingseignarréttur útvegsmanna er best til þess fallinn að tryggja hagkvæma og sjálfbæra nýtingu auðlindarinnar til framtíðar. Því öflugri sem útvegurinn er því meira getur hann skilað þjóðinni í auknum gjaldeyris- og skatttekjum," segir SUS.

SUS segir því að hagsmunum þjóðarinnar sé best borgið með því að viðurkenna einstaklingseignarréttinn á þessu sviði eins og öllum öðrum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×