Hótaði að láta „stærstu glæpasamtök heims“ lemja ólétta konu 8. júlí 2010 14:47 Maðurinn var dæmdur í Héraðsdómi Reykjavikur
Hálffertugur karlmaður var dæmdur í sex mánaða óskilorðsbundið fangelsi í dag fyrir að nefbrjóta karlmann og marglemja hann í bifreið. Samkvæmt dómsorði þá hótaði hann einnig manninum en hann sagði að faðir sinn væri hátt settur í „stærstu glæpasamtökum heims" og að lítið mál væri að láta menn á hans vegum vinna barnshafandi konu fórnarlambsins mein. Það var í febrúar 2009 sem mennirnir hittust í bifreið hins dæmda. Hann bar upp á fórnarlambið að hann ætti í tygjum við konu sína. Ástæðan voru póstsamskipti sem gengu þeirra á milli en þau unnu þá saman. Um var að ræða grínpósta að sögn fórnarlambsins en svo virðist sem afbrýðissami eiginmaðurinn hafi misskilið grínið með þeim afleiðingum að hann gekk í skrokk á honum í bílnum. Þá hótaði árásarmaðurinn manninum öllu illu, meðal annars með stöðu föður síns innan „stærstu glæpasamtaka heims". Ekki er ljóst hvaða samtök árásarmaðurinn átti við, en stærstu glæpasamtök veraldar er Yakuza-mafían í Japan. Talið er að meðlimir japönsku mafíunnar séu tæplega 90 þúsund. Þó má leiða líkur að því að um Vítisenglana sé að ræða þar sem Yakuza-mafían hefur ekki haslað sér völl hér á landi. Ennþá. Í dómsorði segir að árás mannsins hafi verið harkaleg og langdregin. Þá hafi hann sýnt einbeittan brotavilja með verkinu. Því sé ekki tilefni til þess að skilorðsbinda refsinguna.
Mest lesið Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Munurinn minnkar í nýrri spá Erlent „Hverjir tala við mömmu mína?“ Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Fleiri fréttir „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sjá meira