Ögmundur: AGS afdráttarlaust á móti almennum lausnum 8. júlí 2010 09:58 Ögmundur Jónasson.
Ögmundur Jónasson alþingismaður VG segir að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hafi lagst afdráttarlaust gegn almennum lausnum á skuldavanda heimilanna. Þetta kom fram í morgunþættinum Í bítið á Bylgjunni í morgun þar sem Ögmundur ræddi meðal annars um sjóðinn ásamt Ragnheiði Elínu Árnadóttur þingmanni Sjálfstæðisflokksins. Ögmundur segir AGS leggja ofuráherslu á sértækar aðgerðir. „Við vorum að herða á skuldaaðlögunarlögunum sem voru áður komin til framkvæmda og voru betrumbætt núna," segir hann. „En þau taka ekki á málum þeirra sem geta borgað, en bara rétt svo." Ögmundur segir að gagnvart slíkum almennum niðurfærslum hafi sjóðurinn lagst gegn með afdráttarlausum hætti. Að sögn Ögmundar er sjóðurinn hér á landi fyrst og fremst til þess að passa upp á hagsmuni fjármálakerfisins. Ögmundur segir ennfremur að AGS fari að nokkru leyti með efnahagsstjórn landsins. „Hann yfirfer öll frumvörp sem frá ríkisstjórninni koma og lúta að fjárhag og úrlausn efnahagsvandans, það er bara staðreynd sem við horfumst í augu við." Þó er það ekki svo að sögn þingmannsins að sjóðurinn stýri hér efnahagsmálum í öllu tilliti, það geri ríkisstjórnin. Aðpurður hvort sjóðurinn hafi neitunarvald segir Ögmundur: „Hann hefur það í þeim skilningi að það sem við höfum viljað fá á hans vegum, sem er aðgangur að gjaldeyrisforða, hefur verið háð því að við förum að tilsettum reglum og virðum hans sjónarmið. Í þeim skilningi hefur hann það og það er þessvegna sem Íslendingar hafa ekki hent honum á dyr, enn sem komið er."
Mest lesið Bein útsending frá Sundahöfn: Hvað verður um áhöfn Bandero? Innlent Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Innlent Tæplega 50 þúsund manns synt til Ceuta á einum sólahring Erlent Ótrúleg eftirför: „Lyginni líkast að sjá það á fullri ferð úti á ballarhafi“ Innlent Fjölmiðlanefnd eltist við Ólöfu og Kristínu Innlent Megas jarðsunginn í áhrifaríkri útför Innlent Komin handbók um hvernig stefna megi ríkjum og Ísland geti verið næst Innlent „Þá bara krassa lungun“ Innlent Alelda bíll í Reykjanesbæ Innlent Árið sem skytturnar fjórar kvöddu Lífið Fleiri fréttir Alelda bíll í Reykjanesbæ Jákvæð teikn í leitinni að minkunum Ótrúleg eftirför: „Lyginni líkast að sjá það á fullri ferð úti á ballarhafi“ Bandero hafi beitt hættulegum aðferðum: „Þverskallaðist við að fylgja og hlýða fyrirmælum“ Sérsveitaraðgerðir á hvalaslóð og Verslunarmannahelgin að ganga í garð Samtökin hafi bjargað lífi allt að þrjátíu hvala Fjölmiðlanefnd eltist við Ólöfu og Kristínu Megas jarðsunginn í áhrifaríkri útför Bein útsending frá Sundahöfn: Hvað verður um áhöfn Bandero? Komin handbók um hvernig stefna megi ríkjum og Ísland geti verið næst Leggja áherslu á mannúðarlegar aðgerðir vegna minkanna Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Myndi glaður sjá réttarhöld yfir skipverjum Bandero „Þá bara krassa lungun“ Bruni við Breiðhöfða Vasaþjófnaður daglegur atburður og verulegar fjárhæðir teknar Vaktin: Bandero hrellir Hval 9 Þaulskipulagðir vasaþjófar, minkaveiðar og lífgjöf Dekk sprakk við lendingu vélar Borgarísjaka rekur í átt að Skagafirði Stærsta umferðarhelgi ársins hafin Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Meirihluti ætlar að segja já í ágúst Skilningsleysi foreldra mætti litblindum syninum Staðan orðin „þokkalega góð“ Tugir tilkynninga í viku: „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin“ Okkar McCartney, okkar Bach kveður Vasaþjófar gómaðir á Suðurlandi og minkafár í rénun Fleiri en einn hafi verið að verki Dýralæknafélag Íslands fordæmir skemmdarverk í Dalsbúi Sjá meira