Dró úr afbrotum á árinu á höfuðborgarsvæðinu 31. desember 2010 11:47 Stefán Eiríksson, lögreglustjóri.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur tekið saman bráðabirgðatölur um fjölda helstu brota árið 2010. Þrátt fyrir að um bráðabirgatölur sé að ræða segir lögreglustjóri í tilkynningu að upplýsingarnar gefi þó góða innsýn í hvert stefnir. Fram kemur að á höfuðborgarsvæðinu fækkaði hegningarlagabrotum um rúm 10 prósent samanborið við 2009. „Innbrotum fækkaði um fjórðung árið 2010 frá árinu á undan," segir ennfremur. „Miðað við þessar tölur voru framin um sex innbrot á dag á höfuðborgarsvæðinu árið 2010 samanborið við átta á dag árið áður. Að meðaltali voru framin tvö innbrot á dag í heimili á árinu 2010. Nauðgunum fækkaði um þriðjung á milli ára á höfuðborgarsvæðinu. Ofbeldisbrotum fækkaði um tæp 13 prósent. Tæpur helmingur allra ofbeldisbrota á sér stað í Miðborg Reykjavíkur í kringum skemmtanahald um helgar. Minniháttar skemmdarverkum fækkaði lítilsháttar frá árinu á undan." Þá segir að umferðarlagabrotum hafi fjölgað lítillilega milli ára, einkum hraðakstursbrotum. „Einnig fjölgaði brotum þar sem ekið var undir áhrifum ávana- og fíkniefna um 15 prósent en brotum vegna ölvunar við akstur fækkaði lítillega á sama tíma." Fíkniefnabrotum fjölgaði um fimmtung milli ára en lögreglan og tollgæslan á höfuðborgarsvæðinu lögðu hald á mun minna magn fíkniefna árið 2010 en árið á undan. Það ár var reyndar óvenju mikið magn fíkniefna haldlagt. „Lagt var hald á helmingi minna magn af hassi og marihúana en árið áður. Sjö kíló af amfetamíni voru haldlögð árið 2010 samanborið við hátt í sjötíu kíló í fyrra. "
Mest lesið Flugmennirnir sviptir flugréttindum Innlent Skúli fagnar með „sannleikann að vopni“ Innlent Eftirlitsmenn Strætó báðu um að fá að klæðast stunguvestum Innlent „Fólk bara skammast sín svo rosalega mikið“ Innlent Ómálefnalegir dónar fara í skammarkrókinn Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent „Ég er ekki búinn að afskrifa hana“ Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Ekki auðvelt að skrifa grein sem þessa Innlent Fleiri fréttir Segir sama starfið nú auglýst að nýju:„Pínu sárt að horfa upp á þetta“ Flugmennirnir sviptir flugréttindum Fyrrum bæjarstjóri og bankastjóri leiða stjórn Landspítalans „Fólk bara skammast sín svo rosalega mikið“ Málaður regnbogafáni gæti reynst of sleipur Skúli fagnar með „sannleikann að vopni“ Samherji og Guðrún Karls berjast saman gegn fíknidjöflinum Ástarsvik sífellt algengari og rannsókn lokið í Eyjum Eftirlitsmenn Strætó báðu um að fá að klæðast stunguvestum Fórnuðu gúmmístígvélunum við að slökkva sinueld á Ströndum Ekki auðvelt að skrifa grein sem þessa Ómálefnalegir dónar fara í skammarkrókinn „Ég er ekki búinn að afskrifa hana“ „Maður vill trúa kúnnunum sínum“ Hætta rannsókn á andláti á Hraunbúðum „Fær þessar fréttir og við förum að gráta og allt ömurlegt“ „Þetta kemur okkur mjög á óvart“ Segir ótímabært að ræða undanþágur Þrír í haldi vegna fjárkúgunar og ótímabærar undanþágur Þrír handteknir vegna slagsmála Kölluð út um helgina vegna barns sem læstist inni á salerni Leifturhröð viðbrögð björgunarsveitar dugðu ekki til Frestun á frestun ofan í martraðarheimferð frá Gautaborg Atli Steinn biðst auðmjúkur afsökunar Foreldrar velta fyrir sér „innivistartíma barna“ Tuttugu verðandi mæður geti ekki fætt nærri heimili sínu Sæti í almyrkvaflugi falt fyrir hundruð þúsunda króna Maðurinn leitaði ítrekað hjálpar án viðbragða lögreglu Ráðist á mann fyrir utan skemmtistað í nótt Fjárkúgun, nýjasti ráðherrann og loks sól í Reykjavík Sjá meira