Viðræður hefjast í dag um áherslurnar 1. júní 2010 04:00 Fulltrúar Besta flokksins hittu Samfylkinguna í gærmorgun og unnu svo sín á milli að því að búa til fundaáætlun fyrir vikuna. Jón Gnarr og Sigurjón Kjartansson heilsast hér á fundi á sunnudagskvöldið, en Óttarr Ólafur Proppé er í bakgrunni. fréttablaðið/arnþór
Fulltrúar Besta flokksins og Samfylkingarinnar í Reykjavík hittust í gær og komu sér saman um röð leynifunda, sem auglýstir verða sérstaklega. Þar verði málefni væntanlegs meirihluta rædd, en lítið sem ekkert hefur verið tæpt á þeim. „Við settum upp stundaskrá, enda eru margir málaflokkar sem þarf að fara yfir," segir Dagur B. Eggertsson, oddviti Samfylkingarinnar. Hann segir verða fundað næstu daga um málefni og er bjartsýnn á viðræðurnar. Óttarr Ólafur Proppé segir fulltrúa flokkanna hafa náð að hittast í gær og búa til ramma utan um áframhaldandi viðræður. Reyna átti að setja saman stundaskrá yfir leynifundi í gær. Hann segir stefnt að því að hefja viðræður um málefni í dag. Menn hafi þó rekið sig á að hlutirnir gangi hægar fyrir sig en ætlað var. „Það er að hluta til vegna þess að við komum ný inn í vinnuna, en síðan hefur gengið illa að fá frið til að vinna." Efstu menn á listum munu standa að viðræðunum. Þá er fyrirhugað að opna fyrir athugasemdir almennings á sérstakri heimasíðu skuggaborgarstjórnar. Líkur á samstjórn allra flokka í Hafnarfirði hafa snarminnkað og í gær ákváðu Samfylkingin og Vinstri græn að hittast til málefnaviðræðna. Þær hefjast í dag. Viðræðurnar eru á frumstigi og allt á huldu varðandi áherslur, hvað þá um embætti. Bæði Lúðvík Geirsson, núverandi bæjarstjóri, og Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, oddviti Vinstri grænna, hafa gefið því undir fótinn að þau verði bæjarstjórar. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins hefur hvorugur flokkurinn þó sett fram kröfu þar um. Í Kópavogi ganga viðræður milli Samfylkingar, Vinstri grænna, Næstbesta flokksins og Lista Kópavogsbúa vel og er jafnvel búist við því að tilkynnt verði um nýjan meirihluta á morgun. Fulltrúar flokkanna hittust klukkan 17 í gær og stefndu á langan fund. „Við höldum okkur við tímaáætlunina og stefnum að því að ljúka viðræðum á miðvikudag," segir Guðríður Arnardóttir, oddviti Samfylkingarinnar. kolbeinn@frettabladid.is
Mest lesið Skotvopnin reyndust leikfangabyssur Innlent Bolafjallsvegi verður lokað 12. ágúst Innlent Viðræður við Íran hefjist á morgun Erlent Allt að tuttugu stiga hiti og líkur á síðdegisskúrum Veður Einn handtekinn vegna grófrar líkamsárásar Innlent Vopnin reyndust vera „nákvæmar eftirlíkingar“ Innlent Játaði að hafa flutt líkið í ferðatösku Erlent Sárt að geta ekki sagt ömmu sinni frá sakleysi sínu Innlent Grunaður um að hafa ráðist á dyraverði Innlent Miðaði byssu á annan mann Innlent Fleiri fréttir Sparkað í lögreglumann og sjúkraflutningamaður sleginn Vopnin reyndust vera „nákvæmar eftirlíkingar“ Einn handtekinn vegna grófrar líkamsárásar Grunaður um að hafa ráðist á dyraverði Bolafjallsvegi verður lokað 12. ágúst Skotvopnin reyndust leikfangabyssur Meirihluti hlynntur samfélagsmiðlabanni unglinga Knapi datt af baki Miðaði byssu á annan mann Tveir lagðir við gangstéttina Enn brotist inn í miðbænum „Þetta voru þrjátíu til sextíu sekúndur og allt húsið var að brenna“ Fundu byssur í bílum og handtóku fimm Greinir á við kjósendur sína Maður á sjötugsaldri kýldi konu til blóðs í miðbænum Þrír handteknir eftir átök í heimahúsi Sexan millilendir aftur í Reykjavík Siggi stormur sár en dregur ekki í land Sveitarstjóri hefur miklar áhyggjur af ástandi Vestfjarðavegar Grunaður um sölu fíkniefna á Þjóðhátíð Efnahags- og Evrópumál, hvalveiðar og laxeldi á landi á Sprengisandi Handtóku níu og nutu liðsinnis sérsveitar vegna staks eggvopns Sárt að geta ekki sagt ömmu sinni frá sakleysi sínu Myndir: Heimilisfólk komst út heilt á húfi Sumarhús við Þingvallavatn eyðilagðist í eldsvoða Tap vegna ótímabærra veðurspáa hlaupi á milljónum Lét lögreglu fá rauðtússaðan miða: „Ekki einhverjir fylliraftar innan úr miðborg Reykjavíkur“ Gekk um með barefli öskrandi og ógnaði Minkur í Vestmannaeyjum tilkynntur til Mosfellsbæjar Gagnrýna meðferð lögreglu á áhöfninni Sjá meira