Púsluðu saman nýrri plötu 21. september 2010 06:00 Sex manna hljómsveitin Amiina gefur út plötuna Puzzle á miðvikudaginn. Útgáfutónleikar verða einnig haldnir á Nasa.
Hljómsveitin Amiina gefur út sína aðra plötu, Puzzle, á miðvikudag. Tveir karlkyns meðlimir hafa gengið til liðs við þessa fyrrum stúlknasveit. Önnur plata hljómsveitarinnar Amiinu, Puzzle, kemur út hérlendis á miðvikudaginn í samstarfi við Smekkleysu. Sama dag verða haldnir útgáfutónleikar á Nasa þar sem Sin Fang Bous hitar upp. Tveimur dögum seinna heldur sveitin síðan í tveggja vikna tónleikaferð um Evrópu. Þrjú ár eru liðin síðan fyrsta stóra plata Amiinu, Kurr, kom út við góðar undirtektir. Síðan þá hefur margt gerst. Farið var í tónleikaferð með Sigur Rós 2008 auk þess sem tvö Amiinu-börn komu í heiminn. Að auki hafa þau tíðindi átt sér stað að Amiina er ekki lengur stúlknasveit því tveir karlkynsmeðlimir hafa bæst í hópinn, trommarinn Magnús Tryggvason Elíassen og raftónlistarmaðurinn Guðmundur Vignir Karlsson (Kippi Kaninus). „Við fórum að vinna með Magnúsi 2007 þegar við vorum að túra með Kurri. Vorið 2008 héldum við síðan stóra tónleika í Hafnarhúsinu á Listahátíð Reykjavíkur og Vignir tók líka þátt í þeim tónleikum. Þá bjuggum við til ný lög og upp úr því urðum við í raun að þessari útgáfu af bandinu," segir María Huld Markan Sigfúsdóttir úr Amiinu. „Þetta er í rauninni þróun á því sem fyrir var. Hljómsveitir breytast og fara að gera öðruvísi tónlist. Okkur langaði til að þróast og halda áfram," segir hún og bætir við að nýja platan sé töluvert frábrugðin Kurri. Ryþmapælingarnar og raftónlistaráhrifin séu meiri en áður. Spurð um nafnið á plötunni, Puzzle eða púsl, segir María það eiga sér eðlilegar skýringar. „Það er svolítið púsl að skipuleggja hljómsveit með sex manns með fjölskyldur, börn og skólagöngu," segir hún en fjórir meðlimir Amiinu eru í háskólanámi. „Líka hvernig við vinnum tónlistina því það gerist svolítið í skömmtum. Við púslum þessu svolítið saman og hendum á milli okkar hugmyndum. Hún er búin að púslast saman þessi plata í langan tíma." Forsala miða á útgáfutónleikana á Nasa fer fram í Smekkleysu og á Midi.is. Hægt er að kaupa nýju plötuna og fá aukaefni í bónus á heimasíðu Amiinu. freyr@frettabladid.is
Mest lesið Rassaumhirða karla í sókn Lífið Hætt saman en ennþá vinir Lífið Pissaði fyrir framan fólk í sjö klukkutíma á dag Menning Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Lífið Þreföld útgáfa Drake: „Þessi gaur er stærsti rappari allra tíma“ Tónlist Þorgerður Katrín og Sólveig Anna í þrumustuði í Þulu Menning Madonna með heitustu dansmynd ársins Tónlist Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Lífið Enginn venjulegur sjötugur maður Gagnrýni Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lífið Fleiri fréttir Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ „Þetta skiptir okkur mjög miklu máli“ Einmanalegt áhugamál fjögurra íslenskra stráka Krónprinsessan inn og út af sjúkrahúsi „Við höfum oftar en einu sinni fundið hann í fjöru“ Sjá meira