Innlent

Segir erindi Borgarahreyfingarinnar „ævintýralega heimskulegt“

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Sveinn Andri Sveinsson hæstaréttarlögmaður er hvassyrtur í garð Borgarahreyfingarinnar. Mynd/ GVA.
Sveinn Andri Sveinsson hæstaréttarlögmaður er hvassyrtur í garð Borgarahreyfingarinnar. Mynd/ GVA.
Erindi Borgarahreyfingarinnar til lagadeildar Háskóla Íslands er svo ævintýralega heimskulegt að ósofinn leikskólakrakki með hor í nös og króníska eyrnabólgu hefði ekki getað ropað málinu út úr sér í sandkassanum. Þetta segir Sveinn Andri Sveinsson hæstaréttarlögmaður í pistli á Pressunni.

Greint er frá því á vefsíðu Borgarahreyfingarinnar að hún hafi farið þess á leit við lagadeild Háskóla Íslands að sérfræðingar hennar gefi álit sitt á því hvort að ákæra skrifstofustjóra Alþingis á hendur 9 mótmælendum með tilvísun til 100 gr. almennra hegningarlaga frá 1940 sé viðeigandi. Segir Borgarahreyfingin að afar ströng viðurlög liggi við broti gegn umræddri grein og í ljósi ástandsins sem ríkti í þjóðfélaginu í desember 2008 telji Borgarahreyfingin rétt að skoða atburðarásina og framferði mótmælendanna sem tæpast höfðu í huga að taka Alþingi í gíslingu eða valda mönnum tjóni, enda engin vopn höfð um hönd.

Sveinn Andri bendir á að Héraðsdómur Reykjavíkur og síðan hugsanlega Hæstiréttur muni skera úr um það hvort umræddir einstaklingar hafi brotið gegn 100.grein almennra hegningalaga og ef svo er hvort einhver refsibrottfalls- eða refsilækkunarsjónarmið eigi við.

„Fræðimenn og nemendur við lagadeildir íslenskra háskóla munu síðan án efa fjalla um þessi álitaefni í kennslustundum í stjórnskipunarrétti eða refsirétti en að leita álits þeirra á því hvort ríkissaksóknari sé að vinna vinnuna sína er algerlega fráleitt," segir Sveinn Andri.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×