Hvílast minna og aka lengur 7. júlí 2010 08:00 Undanþága frá reglum um hvíldar- og aksturstíma er túlkuð sem viðurkenning á sérstökum aðstæðum hérlendis.fréttablaðið/pjetur
Yfirstjórn ESA, Eftirlitsstofnunar EFTA, hefur samþykkt undanþágur fyrir Ísland frá nokkrum ákvæðum reglna um aksturs- og hvíldartíma atvinnubílstjóra í farmflutningum. Kristján L. Möller, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, ákvað að taka málið upp árið 2008 í kjölfar óska frá Samtökum atvinnulífsins, ASÍ og Starfsgreinasambandinu. Óskaði ráðuneytið eftir undanþágu þar sem aðstæður hér á landi væru að mörgu leyti frábrugðnar því sem gerist á meginlandinu. Ráðherra segir undanþágur sem þessar fordæmalausar gagnvart öðrum EES-ríkjum og að svo virðist sem að nú sé viðurkennt að á Íslandi séu aðstæður með þeim hætti að réttlætanlegt sé að undanþágur séu gefnar frá aksturs- og hvíldartímareglum. Leyfilegur aksturstími dag hvern er 9 klukkustundir, samkvæmt Evrópureglum. Hann má lengja um tvær stundir tvo daga í viku. Fallist er á beiðni Íslands um að aka megi fjóra daga vikunnar í stað tveggja daga í ellefu klukkustundir á leiðunum milli Reykjavíkur og Egilsstaða, Neskaupstaðar og Ísafjarðar. Ráðuneytið hyggst í framhaldinu kanna möguleika á því að fá varanlegar undanþágur, en þær gilda tímabundið frá 30. október 2010 til 15. apríl 2011. - shá
Mest lesið „Þau ákváðu einfaldlega að hann væri minna fatlaður í Garðabæ“ Innlent Íslendingar handteknir á Spáni með mikið magn fíkniefna Innlent Segir nýtt að konan sé tekin á beinið Innlent Lalli Johns er látinn Innlent „Þjóðin á ekki fiskinn í sjónum, fiskurinn á sig sjálfur í sjónum“ Innlent Sakar Rússa um að hafa brennt stærstu verslunarmiðstöð Póllands Erlent Bandaríkjaforseti vill þiggja lúxusþotu frá Katar að „gjöf“ Erlent „Ofgnjótt af vannýttum stæðum“ Innlent Leysa upp samtökin og leggja niður vopn Erlent Bein útsending: Aðgerðir til að bregðast við rakaskemmdum og öðrum byggingagöllum Innlent Fleiri fréttir Reyna enn einu sinni að ræða framtíð MÍR á aðalfundi Leggja til róttækar breytingar á byggingaeftirliti Á von á veiðigjaldamálinu í sína nefnd og þingstörfum fram í júlí Segir nýtt að konan sé tekin á beinið „Ofgnjótt af vannýttum stæðum“ Veiðigjöldin afgreidd í nefnd og njósnarar buðu Sjóvá þjónustu sína Bein útsending: Aðgerðir til að bregðast við rakaskemmdum og öðrum byggingagöllum Mikil hætta meðan maður reyndi að flýja lögreglu í miðbænum „Þjóðin á ekki fiskinn í sjónum, fiskurinn á sig sjálfur í sjónum“ Langflestir telja stríð og átök það sem helst þjakar heiminn „Þau ákváðu einfaldlega að hann væri minna fatlaður í Garðabæ“ Kölluð út vegna viðskiptavinar með æsing Íslendingar handteknir á Spáni með mikið magn fíkniefna Lalli Johns er látinn Afnám virðisaukaskatts geti skilað björgunarsveitum fúlgum fjár Ein staða fornleifafræðings eftir á Þjóðminjasafninu Sker upp herör gegn kínverskum netrisum Aðgerðir gegn Temu og Shein, hraðbanki í hættu og þreyttir hlaupagarpar í beinni „Eiga sína síðustu daga í faðmi ástvina undir hamraslætti og múrborum“ Mótorhjólasamtök aðstoða börn sem hafa orðið fyrir ofbeldi Hækka þurfi veiðigjald í skrefum 230 íbúðir í byggingu í Þorlákshöfn Vopnahlé og í beinni frá Basel og Öskjuhlíð Björgunarsveitir vilja undanþágu frá virðisaukaskatti Gasa, veiðigjöld, gagnaleki og kolefni í Sprengisandi Starfsmaður verslunar sleginn Einn fluttur á sjúkrahús vegna reykeitrunar „Vandræðalegt“ að stjórnin hafi ekki mannað eigin þingfund Icelandair hættir rekstri stærstu flugvéla sinna Veittu eftirför í Árbæ Sjá meira