Leiguverð lækkað um þrettán til 32 prósent 5. febrúar 2010 05:00
Leiguverð á höfuðborgarsvæðinu hefur að jafnaði lækkað um 13 til 32 prósent síðan á vordögum 2008. Þetta er niðurstaða nýrrar verðkönnunar Neytendasamtakanna, sem er sú þriðja sem samtökin ráðast í á tæpum tveimur árum. Mest hefur leiguverð lækkað á fimm herbergja íbúðum, sem eru 163 fermetrar að meðalstærð samkvæmt könnuninni. Meðalverð á þeim hefur lækkað um tæp 32 prósent síðan í apríl 2008, eða um 55 þúsund krónur, og er nú tæpar 174 þúsund krónur á mánuði. Meðalverð á fjögurra herbergja íbúðum hefur lækkað um 15,6 prósent, niður í tæpar 147 þúsund krónur. Meðalverð á þriggja herbergja íbúðum hefur lækkað minnst, eða um 13,3 prósent, niður í um 124 þúsund krónur. Tveggja herbergja íbúðir kosta að meðaltali rúmar 100 þúsund krónur á mánuði og hafa lækkað um 18,8 prósent, en meðalverð á stúdíóíbúðum hefur lækkað mest, um 20,1 prósent, niður í 76 þúsund krónur á mánuði. Neytendasamtökin taka fram að könnunin sé alls ekki tæmandi, heldur hafi einungis verið skoðaðar íbúðir sem auglýstar voru til leigu hjá leiga.is, Leigulistanum og Rentus. Þá hafi ekki verið tekið tillit til kostnaðar sem kynni að skapast vegna rafmagns eða hússjóðs, eða þess hvort húsbúnaður fylgir íbúðinni. „Þó má gera ráð fyrir að raunveruleg lækkun sé umtalsvert meiri, enda gera flestir leigusamningar ráð fyrir því að leiguverð breytist með tilliti til neysluvísitölu," segir í frétt á vef Neytendasamtakanna. „Þeir sem tóku t.a.m. íbúð á langtímaleigu árið 2008 greiða því mun hærra leiguverð nú en samið var um í upphafi sé leiguupphæðin tengd við vísitölu." Síðasta könnun var gerð í mars í fyrra og hefur fermetraverð á öllum stærðum íbúða hækkað lítillega síðan þá. Það hefur hins vegar lækkað verulega síðan vorið 2008. stigur@frettabladid.is
Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Innlent Berserksgangur á gististað Innlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Segir vopnahlé framlengt um þrjár vikur Erlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Fleiri fréttir Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Sjá meira