Steingrímur: Fögnum samstarfsvilja Norðmanna 5. febrúar 2010 12:07 Mynd/GVA
Fjármálaráðherra segir jákvætt að vilji sé til þess í Noregi að lána Íslendingum fyrir Icesaveskuldbindingunum. Þetta hafi þó ekki verið rætt formlega við norsk stjórnvöld. Breið samstaða virðist vera að myndast meðal norskra stjórnmálamanna með málstað Íslands í Icesave deilunni við Breta og Hollendinga, þvert á alla stjórnmálaflokka í landinu. Nú síðast hefur Sigbjörn Johnsen, fjármálaráðherra Noregs, ekki útilokað að Norðmenn láni Íslendingum fyrir Icesave skuldbindingunum og semji síðan við Breta og Hollendinga um endurgreiðslurnar. „Við erum í mjög góðu sambandi við Noreg og þeir fylgjast grannt með málinu og það er velvilji þar til staðar," sagði Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra að loknum ríkisstjórnarfundi í morgun. Það sé hins vegar ekki skynsamlegt að segja meira um málið á þessu stigi. Steingrímur segir að stjórnarliðar hafi átt góðan fund með forystu stjórnarandstöðunnar í gær og reiknar með að til tíðinda kunni að draga í þessum málum innan skamms. En nú situr hann fund með Jóhönnu Sigurðardóttir forsætisráðherra sem gefur skýrslu um fund sinn með forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins og Olli Rehn stækkunarstjóra þess í gær. Steingrímur segir það greinilega möguleika sem ræddur hafi verið í Noregi; að lána Íslendingum fyrir Icesave skuldbindingunum á betri vöxtum en eru í Icesave samkomulaginu. Þetta hafi verið rætt í Noregi. „Við fögnum því að sjálfsögðu að það er vilji og áhugi til staðar," sagði fjármálaráðherra.
Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Innlent Berserksgangur á gististað Innlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Segir vopnahlé framlengt um þrjár vikur Erlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Fleiri fréttir Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Sjá meira