Innlent

Kröfum Baldurs hafnað - áfrýjar til Hæstaréttar

Mynd/Stefán Karlsson
Kröfum Baldurs Guðlaugssonar, fyrrverandi ráðuneytisstjóra, um ógildingu á kyrrsetningu eigna hans var hafnað í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Arnar Þór Stefánsson lögmaður Baldurs hyggst kæra úrskurðinn til Hæstaréttar á mánudag.

Þegar rannsókn hófst aftur á máli Baldurs voru eignir hans, tæplega 200 milljónir króna kyrrsettar í fyrra. Upphæðin jafngildir því fé sem hann fékk fyrir hlutabréf sín í Landsbankanum þegar hann seldi þau rétt fyrir bankahrun. Þá staðfesti Hæstiréttur í fyrradag úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um að rannsókn á meintum innherjasvikum Baldurs verði ekki felld niður.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×