Ráðherra eykur strandveiðikvótann um 2.000 tonn 5. febrúar 2010 12:09
Í frumvarpi um strandveiðar gerir ráð fyrir að heimild til strandveiða verði lögfest og fyrirkomulag veiðanna verði í meginatriðum það sama og í fyrra. Þannig er gert ráð fyrir að strandveiðar muni einkum takmarkast af þeim aflaheimildum sem ráðstafað er sérstaklega til veiðanna, eða allt að 6.000 lestum af óslægðum botnfiski í stað 3.995 lesta af þorski auk annarra tegunda líkt og var á síðasta ári.Í tilkynningu frá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu er greint frá þeim breytingar sem gerðar eru frá sl. sumri. Sú helsta er að á hverju fiskveiðiári verði aflaheimildir sem nema allt að 6.000 lestum af óslægðum botnfiski til ráðstöfunar til veiða á handfæri, sem ekki reiknast til aflamarks eða krókaaflamarks þeirra fiskiskipa sem stunda veiðarnar.Heimilt verði að stunda veiðarnar á tímabilinu frá 1. maí til 31. ágúst. Á síðasta ári hófust veiðarnar í lok júní og stóðu fram í ágúst. Í þessu frumvarpi er gert ráð fyrir að veiðitímabilið verði fjórir mánuðir. Með því að leggja til að veiðar geti hafist í maí er gert ráð fyrir að veiðar við sunnanvert landið verði auðveldari með tilliti til staðbundinnar fiskgengdar.Hverri útgerð verði einungis heimilt að fá leyfi til strandveiða fyrir eitt fiskiskip. Takmörkun þessi er sett með tilvísun til þess markmiðs að sem flestum verði gert kleift að stunda strandveiðar. Af þessu leiðir að ekki er gert ráð fyrir að einn aðili geti gert út mörg veiðiskip á strandveiðum.Frá og með fiskveiðiárinu 2010/2011 verði óheimilt að veita fiskiskipi leyfi til strandveiða, hafi aflamark umfram það aflamark sem flutt hefur verið til þess á sama fiskveiðiári verið flutt af því. Eftir útgáfu leyfis til strandveiða er skipum óheimilt að flytja frá sér aflamark þess árs umfram það sem flutt hefur verið til skips.Ekki þykir ástæða til þess að veita útgerð stranveiðileyfi í framtíðinni sem velur að flytja frá sér aflamark umfram það aflamark sem flutt er til skips.Ráðherra verði heimilt með reglugerð að banna strandveiðar á almennum frídögum. Síðastliðið sumar varð vart mikils áhuga á að heimila ekki veiðar á frídegi verslunarmanna, m.a. þar sem möguleikar til að landa afla á markað voru mismunandi. Er með þessu ákvæði frumvarpsins ráðherra veitt skýlaus heimild til að taka tillit til slíkra aðstæðna.Á hverju fiskiskipi verði heimilt að draga 650 kg, í þorskígildum talið, af kvótabundnum tegundum í hverri veiðiferð. Þannig er afli hverrar veiðiferðar takmarkaður við 650 kg af kvótabundnum tegundum, í þorskígildum talið. Er þetta breyting frá fyrra ári þegar heimilt var að veiða 800 kg af kvótabundnum tegundum án viðmiðunar við þorskígildi. Um sambærilegt magn er að ræða þar sem þorskígildi eru nú látin ráða. Með þessu móti er jafnframt dregið úr hvata til brottkasts á öðrum tegundum en þorski.Það er von sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Jóns Bjarnasonar, að frumvarpi þessu verði vel tekið, því fyrir liggur að strandveiðar hafa sannað gildi sitt.
Mest lesið Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Innlent „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ Innlent „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Innlent Eldur í Bryggjuhverfi Innlent Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Innlent Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Innlent Lést er hún fagnaði sigri Frakka Erlent Tólf látnir í skógareldum í suðurhluta Spánar Erlent Óttast að færri leiti sér aðstoðar Innlent Fleiri fréttir „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ „Við skulum ekki láta grípa okkur með buxurnar á hælunum þetta árið“ Ungir síbrotamenn, eldur í Bryggjuhverfinu og andstæður í veðrinu „Við skírðum hana Halla Sykurvatn Tómatsósudóttir“ Eldur í Bryggjuhverfi Jarðböðin við Mývatn opin á nýjan leik „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Vegagerðin varar við vindi Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Lögreglan þekkti óprúttna aðila á upptökum Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Sjá meira