Innlent

Þyrluþjónusta Landhelgisgæslunnar verði efld

Mynd/Vilhelm Gunnarsson
Landssamband íslenskra útvegsmanna, Farmanna- og fiskimannasamband Íslands, Sjómannasamband Íslands og VM - félag vélstjóra og málmtæknimanna telja brýnt að efla þyrluþjónustu Landhelgisgæslunnar. Nýlegt atvik undirstriki að niðurskurður á rekstrarfé Gæslunnar ógni öryggi sjómanna á hafi úti.

Þá varð Landhelgigæslan að synja beiðni frá íslenskum togara sem óskaði eftir þyrluhjálp vegna veikinda skipverja. Ekki var hægt að verða við beiðninni, þar sem skipið var um 70 sjómílur frá landi og aðeins ein þyrluvakt til taks. Við slíkar aðstæður er þyrla ekki send lengra en 20 mílur á haf út.

Í áskorun félaganna segir að Landhelgisgæslunni sé ætlað að sinna mjög víðfeðmu hafsvæði og hún gegni mikilvægu öryggishlutverki fyrir íslenska sjómenn. Upp geti komið tilvik eða aðstæður, þar sem tími til björgunar sé svo naumur að þyrla sé eina tækið sem sjómenn geta treyst á.

„Þótt þrengingar séu í ríkisrekstri er það dýrkeyptur sparnaður að vega að ákveðnum grunnþáttum á borð við þyrluþjónustu Landhelgisgæslunnar og þar með öryggi sjómanna á hafi úti. Við skorum því á stjórnvöld að efla starfsemi Landhelgisgæslunnar þannig að hún fái sinnt því eftirlits- og öryggishlutverki sem henni er ætlað samkvæmt lögum," segir í áskoruninni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×