Kolsvartur gleðileikur 5. febrúar 2010 04:00 Úr ufsagrýlum sjóns Djúpsálarmynd af hruninu.
Ufsagrýlur, nýtt leikrit eftir Sjón, verður frumsýnt í Hafnarfjarðarleikhúsi í kvöld. „Þetta er svartur gleðileikur, eins og sá sem við Íslendingar erum staddir í núna,“ segir Sjón. „Fjallar um trúnaðarbrestinn á milli þegnanna í litlu landi og hvernig hann fer með fólkið. Kannski ekki síst með þá sem brugðust. Það er verið að velta því fyrir sér hvort lækning sé möguleg.“ Sjón segir að það sé niðurstaða í verkinu og hana muni áhorfendur sjá. „Ég held að áhorfendur muni hugsa um sjálfa sig og aðra á meðan þeir horfa á þetta. Ég held þeir muni taka afstöðu, en það er ekki verið að troða neinu niður um kokið á fólki. Þetta er ekkert predikunarverk. Það er verið að skoða djúpsálarmyndina af því sem hefur gerst. Við notum tæki ævintýrsins og martraðarinnar til að skoða þetta. En fyrst og fremst er þetta kómedía þótt hún sé ansi svört.“ Leikstjóri er Rúnar Guðbrandsson, sem Sjón segir að sé helsti framsækni leikstjórinn í dag. „Hann hefur safnað saman ansi mögnuðum hópi listamanna, meðal annars strákunum í Stilluppsteypu (Helgi Þórsson og Sigtryggur Berg Sigmarsson). Þeir eru í fyrsta skipti að vinna í leikhúsi og hafa búið til mjög flotta hljóðmynd.“ Leikarar í Ufsagrýlum eru sex, þau Aðalbjörg Árnadóttir, Árni Pétur Guðjónsson, Birna Hafstein, Erling Jóhannesson, Hjálmar Hjálmarsson og Orri Huginn Ágústsson. - drg
Mest lesið „Hæ ástin mín, Nýtt í hverjum mánuði á fimmtudaginn, ertu laus?“ Áskorun Glódís Perla og Kristófer gengu í það heilaga Lífið Brigitte Bardot er látin Lífið Bæði sorg og gleði að ala upp fimm börn með sérþarfir Lífið Vinsælustu myndböndin á Vísi á árinu Lífið Frægir fjölguðu sér árið 2025 Lífið Sjálfur jólasveinninn skotspónn samsæriskenninga Lífið Ásgeir Kolbeins furðu lostinn yfir steini í jólapakkanum Lífið Gefa bretti af flugeldum að verðmæti 300.000 króna Lífið samstarf „Fyrri kona mannsins míns er með Parkinson, ekki ég“ Áskorun Fleiri fréttir Brigitte Bardot er látin Glódís Perla og Kristófer gengu í það heilaga Bæði sorg og gleði að ala upp fimm börn með sérþarfir Sjálfur jólasveinninn skotspónn samsæriskenninga Þakkar Trump í ólettutilkynningunni Íslenskur mágur Rex Heuermann efins um ódæði hans Vinsælustu myndböndin á Vísi á árinu Frægir fjölguðu sér árið 2025 Gítarleikari The Cure er látinn Skilaði týndum heyrnartólum alla leið til Hamborgar Sjáðu nýja stiklu úr stjörnuprýddri hasarmynd Balta Ásgeir Kolbeins furðu lostinn yfir steini í jólapakkanum Viðtöl ársins 2025: Missir, afsögn ráðherra, umsáturseinelti og læknir sem þóttist vera með krabbamein Sat uppi með sex kíló af kæstri skötu Kristmundur Axel tók við af Bubba Seinfeld og Friends-leikari látinn Jólagjafir íslenskra vinnustaða Deildar meiningar um lyktina: „Þetta er byrjendaskata“ Fréttamenn gæða sér á skötu í gegnum árin Laufey á landinu Þar sem vinsælustu lög landsins verða til Þessi smurðu mest á reikning Jommunnar Einhverfir kaþólikkar um allan heim heita Þorlákur Cooper bað móðurina um hönd Hadid „Mér finnst gaman að láta sjokkera mig“ Brúðkaup ársins 2025 Heitt í hamsi hjá gestum á „helvíti á jörðu“ í Breiðholti Chris Rea hefur ekið heim um jólin í síðasta skipti Saga jarðaði alla við borðið Vísa ásökunum Skinner um kosningasvindl á bug Sjá meira
Viðtöl ársins 2025: Missir, afsögn ráðherra, umsáturseinelti og læknir sem þóttist vera með krabbamein