Aldrei nær samkomulagi 5. febrúar 2010 18:36
Fjármálaráðherra segir stjórn og stjórnarandstöðu nær því en nokkru sinni fyrr að ná saman um hvernig staðið yrði að nýjum samningum um Icesave við Breta og Hollendinga. Hann segir jákvætt ef Norðmenn vilji lána Íslendingum fyrir skuldbindingunni á betri kjörum, en engar formlegar viðræður hafi átt sér stað við Norðmenn um það. Ýmsir stjórnmálamenn í Noregi hafa mælt með því að Norðmenn láni Íslendingum fyrir Icesave skuldbindingunum á betri kjörum en Bretar og Hollendingar bjóða, og síðan semji Norðmenn við þá um greiðslur skuldbindinganna. En Norðmenn sem standa traustum fótum efnahagslega gæti væntanlega náð betri samningum en Íslendingar. „Það er auðvitað möguleiki sem greinilega er ræddur í Noregi. Hvernig þeir gætu hugsanlega komið að því og hjálpað til við að leysa þetta mál, Við fögnum því að sjálfsögðu að það er vilji og áhugi þar til staðar," segir Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra. Það borgi sig hins vegar ekki að fara út í efnisatriði hvað þetta varðar nú. Engar formlegar viðræður Fjármálaráðherra sagðist ekki geta svarað því á þessari stundu hvort stjórnvöld myndu fara fram á aðstoð sem þessa frá Norðmönnum. En ef einhver þátttaka af þeirra hálfu gæti orðið hluti að lausn málsins, myndi ríkisstjórnin leita eftir því. Engar formlegar viðræður hefðu þó átt sér stað um þetta við Norðmenn. Stjórn og stjórnarandstaða funduðu síðast í gær um sameiginlega aðkomu að nýjum samningum við Hollendinga og Breta. „Við vorum öll ánægð með fundinn sem var í hádeginu í gær. Og ég hef sagt og get endurtekið það að við erum nær því að ná saman um raunhæfa hluti en nokkru sinni fyrr," segir fjármálaráðherra sem reiknar með frekari fundarhöldum um helgina. Steingrímur hefur sagt að ríkisstjórnin hafi ekki getað greint frá öllum upplýsingum um bankahrunið, sem t.a.m. væri að finna í trúnaðargögnum sem alþingismenn hefðu aðgang að og svo ætti meira eftir að koma fram. „Rannsóknarnefnd Alþingis hefur haft aðgang að gögnum innan úr bankakerfinu sem stjórnvöld hafa ekki í sínum höndum. Það má alveg búast við því að þar með varpist skýrara ljós á málið þegar skýrslan kemur fram," segir fjármálaráðherra. Þar sé hann ekki að vísa til tiltekinna atriða, enda hafi hann ekki aðgang að skýrslunni né því sem í henni verði.
Mest lesið Ákærð fyrir að frelsissvipta dreng eftir dyraat Innlent Twitter-morðinginn tekinn af lífi Erlent Sagði Sean Combs ekki virða svarið „Nei“ Erlent Hreinsanir hafnar í Íran Erlent „Fyrir vikið er flokkurinn á hverfandi hveli“ Innlent Ingvar útskrifaður úr meðferð Innlent Litla kaffistofan skellir í lás Innlent Fínasta grillveður í kortunum Innlent Varar við því að stórvirkjun í Skagafirði verði útilokuð Innlent Tveir handteknir í tengslum við líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Flakk á fylginu og brunamótamatið vanáætlað Lögregla varar við „Nígeríubréfum“ og öðrum netglæpum Veita engar upplýsingar um tilboðið í Háholt Nýju tilboði í Háholt svarað með gagntilboði Tilkynningum til barnaverndar fjölgaði um tíu prósent árið 2024 Tveir skjálftar úti á Reykjaneshrygg Innbrot á veitingastað og grunur um íkveikju í bifreið Veik stofnun skaði fjárhag ríkissjóðs Barnasáttmálinn verið þverbrotinn í barnvænu sveitarfélagi Þorgerður niðurlægi konur með því að kalla Trump heillandi „Menn eru alla vega að vinna með sömu tölu“ Sögulegur NATO-fundur, umræðumet í uppsiglingu og afmæli í Heiðmörk „Þetta er svona hús sem er alltaf verið að flytja í og úr“ Bíll valt í Kópavogi Líkir veiðigjaldaáformum við sóvéska eignaupptöku Komu sextán dvalarleyfishöfum af Gasasvæðinu Heiðrún Lind fóðri málflutning með alvarlegum rangfærslum Sameiningarhugur á Vestfjörðum Rannsókn á andláti í Garðabæ lokið Orð Kristrúnar vöktu „gott bros“ Bandaríkjaforseta Gæsluvarðhald aftur framlengt um fjórar vikur Var ekki með réttindi til að aka hjólinu sem átti ekki að vera í umferð Bassi Maraj sakfelldur fyrir líkamsárás Lokanir á brúnni yfir Jökulsá í kvöld Rangstæð valkyrja sem skilji ekki frumvarpið Flagga íslenska þjóðfánanum í ólöglegri göngu Læknasamningur gæti orðið hvati að oflækningum Sjúkratryggingar fagna skýrslu Ríkisendurskoðunar Sjúkratryggingar réðu illa við læknana í Reykjavík Benedikt nýr skólameistari VMA Sjá meira