Orkan fyrir norðan flutt suður? Kristján Már Unnarsson skrifar 5. febrúar 2010 12:09 Kristján Þór Júlíusson. Mynd/Vilhelm Gunnarsson
Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra benti á Þingeyjarsýslur þegar Kristján Þór Júlíusson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, spurði á Alþingi í gær hvar ætti að fá raforku í þau verkefni sem virkjanir í neðri Þjórsá áttu að sinna. Kristján Þór sagði hins vegar að Norðlendingar myndu ekki standa eilíflega í því að flytja orkuna og lífsbjörgina suður.Kristján Þór vitnaði til þeirra orða Harðar Arnarsonar, forstjóra Landsvirkjunar, á Stöð 2, að ákvörðun umhverfisráðherra, að hafna skipulagi virkjana í neðri Þjórsá, myndi tefja atvinnuuppbyggingu, sem byggði á orku þeirra virkjana, um eitt til tvö ár. Kristján Þór sagði að í ljósi þessara orða forstjóra stærsta orkufyrirtækis landsins væru þetta grafalvarleg tíðindi, ekki síst í ljósi þess að fjöldi fyrirtækja hefði óskað eftir viðræðum um atvinnuuppbyggingu. Hann spurði iðnaðarráðherra hvaða aðrir virkjanakostir væru í hendi.Katrín Júlíusdóttir svaraði með því að benda á Norðurland og sagði að það hlyti að gleðja háttvirtan þingmann að hjá Landsvirkjun væri settur mikill fókus á svæðin í Þingeyjarsýslum. "Vegna þess að það er alveg ljóst að það næsta í tíma, og mesta magn af orku sem við getum sótt, verður á því svæði," sagði Katrín.Kristján Þór sagði það vissulega gleðja sitt hjarta að Norðurland gæti orðið þjóðinni til hjálpar á þessum erfiðu tímum. Það dygði þó ekki til svars fyrir þau verkefni sem hefðu beðið hér í alllangan tíma.Í fréttum Stöðvar 2 í gær kom fram að sex mismunandi aðilar væru í viðræðum við sveitarfélagið Ölfus um uppbyggingu í Þorlákshöfn. Á Suðurnesjum eru einnig nokkur verkefni í undirbúningi, svo sem gagnaver og kísiliðnaður."Það er alveg ljóst að þau áform eru við þennan úrskurð í algjöru uppnámi. Því að ekki munum við Norðlendingar standa eilíflega í því, hvort heldur er á Norðurlandi vestra eða eystra, að flytja orkuna og lífsbjörgina hér suður," sagði Kristján Þór.Katrín Júlíusdóttir svaraði því ekki í seinni ræðu sinni hvaða aðra kosti en Þingeyjarsýslur Landsvirkjun hefði til að mæta óskum um orkusölu til nýrra verkefna sunnan heiða.
Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Erlent Fleiri fréttir Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Sjá meira