Heilsuverndarstöðin verði Icelandair-hótel 5. febrúar 2010 03:15 Nýtt hlutverk á Barónsstíg? Eigandi gömlu Heilsuverndarstöðvarinnar vill leigja hana til Icelandair Hotels. Samsett mynd/Fréttablaðið
Heilsuverndarstöðin á Barónsstíg verður orðin að hóteli fyrir vorið fallist skipulagsyfirvöld í Reykjavík á áform eiganda byggingarinnar. Í bréfi til byggingarfulltrúans í Reykjavík frá Haraldi L. Haraldssyni fyrir hönd Álftavatns ehf., eiganda byggingarinnar á Barónsstíg 47, segir að rætt hafi verið að undanförnu við Icelandair Hotels um leigu á húsinu undir hótelrekstur sem myndi hefjast strax í vor. „Til þess að það geti orðið að veruleika þarf að vinna hratt í málinu,“ segir Haraldur í bréfinu sem byggingarfulltrúi fyrir sitt leyti vísaði til skipulagsráðs. „Hefja þarf markaðssetningu hótelsins vegna sumarsins 2010 ekki seinna en í byrjun febrúar næstkomandi. Takist það ekki má gera ráð fyrir að hugmynd þessi nái ekki fram að ganga því næsta „season“ er þá ekki fyrr en sumarið 2011 og glatast þá niður eins og hálfs árs arðsemi húss og hótelrekstrar,“ segir í erindi Álftavatns ehf. Fram kemur í bréfinu að eftir mikla vinnu á undanförnum misserum sé Barónsstígur 47 nú tilbúinn í rekstur sem læknamiðstöð og sjúkrahótel. Ekki hafi fundist aðilar í þann rekstur. Hins vegar henti hótelrekstur jafnvel enn betur en læknamiðstöð í því umhverfi sem húsið sé því mun færri bílastæði þurfi fyrir hótel. „Einnig skal tekið fram að Icelandair Hotels er ein virtasta hótelkeðja á Íslandi og því má gera ráð fyrir að rekstur hennar á hóteli á þessu svæði muni vera vandaður og ætti ekki að falla gegn íbúum í næsta nágrenni,“ segir í bréfi Álftavatns, sem einmitt hefur mótmælt stækkunaráformum við Domus Medica á þeim grundvelli að stækkunin myndi skapa mikinn bílastæðavanda á svæðinu. Þá segir Haraldur að fjármagn sé þegar tryggt. Vinna við breytingar á húsinu muni skapa að minnsta kosti 25 störf fram á vor. „Auk þess mun það skapa ný störf til framtíðar sem hlýtur að skipta miklu máli í því ástandi sem okkar þjóðarbú er nú í,“ segir í erindi Haraldar sem lagt var fyrir skipulagsráð á miðvikudag. Þar var afgreiðslu málsins frestað. - gar
Mest lesið Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Innlent „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ Innlent „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Innlent Eldur í Bryggjuhverfi Innlent Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Innlent Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Innlent Lést er hún fagnaði sigri Frakka Erlent Tólf látnir í skógareldum í suðurhluta Spánar Erlent Óttast að færri leiti sér aðstoðar Innlent Fleiri fréttir „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ „Við skulum ekki láta grípa okkur með buxurnar á hælunum þetta árið“ Ungir síbrotamenn, eldur í Bryggjuhverfinu og andstæður í veðrinu „Við skírðum hana Halla Sykurvatn Tómatsósudóttir“ Eldur í Bryggjuhverfi Jarðböðin við Mývatn opin á nýjan leik „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Vegagerðin varar við vindi Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Lögreglan þekkti óprúttna aðila á upptökum Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Sjá meira