Innlent

Njósnaraskipti í skjóli nætur

Anna Chapman, ein af rússnesku njósnurunum, sem erlendir fjölmiðlar hafa kallað 00-Sex.
Anna Chapman, ein af rússnesku njósnurunum, sem erlendir fjölmiðlar hafa kallað 00-Sex.

Njósnaraskipti í anda kalda stríðsins fóru fram á flugvellinum í Vínarborg í gær, þegar Rússar og Bandaríkjamenn skiptust á fjórtán njósnurum.

Bandaríska Alríkislögreglan kom upp um og handtók tíu einstaklinga fyrir nokkrum mánuðum sem allir játuðu svo fyrir dómi að hafa stundað njósnir fyrir Rússa. Ríkin sömdu síðan sín á milli um að skiptast á njósnurum og fóru skiptin fram á alþjóðaflugvellinum í Vínarborg í Austurríki í gær, í stærstu njósnaraskiptum sem átt hafa sér stað milli ríkjanna frá því í kalda stríðinu.

Flugvél frá Bandaríkjunum og önnur frá Rússlandi var lagt á afviknum stað á flugvellinum þar sem Bandaríkjamenn slepptu tíu rússneskum njósnurum og Rússar fjórum bandarískum njósnurum. Skömmu síðar tóku báðar flugvélarnar á loft frá flugvellinum. Allt fólkið hafa játað á sig njósnir. Tveir þeirra sem Bandaríkjamenn fengu til sín eru fyrrverandi háttsettir rússneskir hermenn sem sakaðir eru um að hafa allt frá sovéttímanum gefið Bandaríkjamönnum upplýsingar sem komu upp um rússneska njósnara í Bandaríkjunum.

Joe Biden varaforseti Bandaríkjanna átti erfitt með að svara Jay Leno vegna þessa máls í í spjallþætti Lenos í gærkvöldi. Leno spurði hvort þetta væru ekki ósanngjörn skipti að fá aðeins fjóra njósnara lausa í skiptum fyrir tíu. Varaforsetinn sagði svo ekki vera. Bandaríkjamenn hefðu fengið fjóra góða einstaklinga framselda.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×