Innlent

Förðun fyrir stelpur og bílar fyrir stráka

Álftanesskóli fer gegn jafnréttislögum með því að bjóða nemendum í áttunda, níunda og tíunda bekk upp á „stelpuval" og „strákaval" sem valgreinar. Jafnréttisstofu hafa borist erindi vegna málsins. Það staðfestir Tryggvi Hallgrímsson, sérfræðingur hjá Jafnréttisstofu. Hann segir standa í lögunum að kennsla og námsgögn skuli vera þannig úr garði gerð að kynjum sé ekki mismunað.

Samkvæmt upplýsingabæklingi sem er á heimasíðu skólans er farið yfir helstu áhugamál stelpna í „stelpuvali". Spáð verði í fatnað, förðun og heilsu meðal annars og förðunarnámskeið haldin. Þá verða slúðurblöð skoðuð og farið á netið til að fylgjast með frægu fólki hér á landi og erlendis. Hjá strákunum er námsefnið helstu úrslit helgarinnar, bílar og bíla­íþróttir og tækni og vísindi.

Tryggvi segir að markmiðum jafnréttislaganna skuli meðal annars náð með því að vinna gegn hefðbundnum kynjaímyndum og neikvæðum staðalímyndum um hlutverk karla og kvenna. „Þannig að það er klárt að skólar almennt geta ekki boðið upp á námskeið sem höfða aðeins til annars hvors kynsins og það er klárlega verið að ýta undir staðalímyndir kynjanna með námsgreinum sem meðal annars leggja áherslu á að konur kynni sér undirstöður í förðun og fylgjast með slúðurblöðum og svo framvegis." Jafnréttisstofu hafa áður borist erindi vegna valnámskeiða í grunnskólum og þá hafa breytingar verið gerðar í samræmi við jafnréttislög.

Erna I. Pálsdóttir, aðstoðarskólastjóri Álftanesskóla, sagði í fréttum Stöðvar 2 í gærkvöld að heitin á námskeiðunum séu mistök skólans og upptalningin í áföngunum sé komin frá krökkunum sjálfum. Erna sagði jafnframt að áfangarnir séu ekki kynjaskiptir heldur vinni allir saman í hóp. Námskeiðin séu þó sett klaufalega fram.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×