Förðun fyrir stelpur og bílar fyrir stráka 15. júlí 2010 00:00
Álftanesskóli fer gegn jafnréttislögum með því að bjóða nemendum í áttunda, níunda og tíunda bekk upp á „stelpuval" og „strákaval" sem valgreinar. Jafnréttisstofu hafa borist erindi vegna málsins. Það staðfestir Tryggvi Hallgrímsson, sérfræðingur hjá Jafnréttisstofu. Hann segir standa í lögunum að kennsla og námsgögn skuli vera þannig úr garði gerð að kynjum sé ekki mismunað. Samkvæmt upplýsingabæklingi sem er á heimasíðu skólans er farið yfir helstu áhugamál stelpna í „stelpuvali". Spáð verði í fatnað, förðun og heilsu meðal annars og förðunarnámskeið haldin. Þá verða slúðurblöð skoðuð og farið á netið til að fylgjast með frægu fólki hér á landi og erlendis. Hjá strákunum er námsefnið helstu úrslit helgarinnar, bílar og bílaíþróttir og tækni og vísindi. Tryggvi segir að markmiðum jafnréttislaganna skuli meðal annars náð með því að vinna gegn hefðbundnum kynjaímyndum og neikvæðum staðalímyndum um hlutverk karla og kvenna. „Þannig að það er klárt að skólar almennt geta ekki boðið upp á námskeið sem höfða aðeins til annars hvors kynsins og það er klárlega verið að ýta undir staðalímyndir kynjanna með námsgreinum sem meðal annars leggja áherslu á að konur kynni sér undirstöður í förðun og fylgjast með slúðurblöðum og svo framvegis." Jafnréttisstofu hafa áður borist erindi vegna valnámskeiða í grunnskólum og þá hafa breytingar verið gerðar í samræmi við jafnréttislög. Erna I. Pálsdóttir, aðstoðarskólastjóri Álftanesskóla, sagði í fréttum Stöðvar 2 í gærkvöld að heitin á námskeiðunum séu mistök skólans og upptalningin í áföngunum sé komin frá krökkunum sjálfum. Erna sagði jafnframt að áfangarnir séu ekki kynjaskiptir heldur vinni allir saman í hóp. Námskeiðin séu þó sett klaufalega fram.
Mest lesið Bein útsending: Bandero kominn til Sundahafnar Innlent Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Innlent Tæplega 50 þúsund manns synt til Ceuta á einum sólahring Erlent Árið sem skytturnar fjórar kvöddu Lífið „Þá bara krassa lungun“ Innlent Myndi glaður sjá réttarhöld yfir skipverjum Bandero Innlent Komin handbók um hvernig stefna megi ríkjum og Ísland geti verið næst Innlent Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Innlent Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Innlent Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Bandero kominn til Sundahafnar Komin handbók um hvernig stefna megi ríkjum og Ísland geti verið næst Leggja áherslu á mannúðarlegar aðgerðir vegna minkanna Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Myndi glaður sjá réttarhöld yfir skipverjum Bandero „Þá bara krassa lungun“ Bruni við Breiðhöfða Vasaþjófnaður daglegur atburður og verulegar fjárhæðir teknar Vaktin: Bandero hrellir Hval 9 Þaulskipulagðir vasaþjófar, minkaveiðar og lífgjöf Dekk sprakk við lendingu vélar Borgarísjaka rekur í átt að Skagafirði Stærsta umferðarhelgi ársins hafin Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Meirihluti ætlar að segja já í ágúst Skilningsleysi foreldra mætti litblindum syninum Staðan orðin „þokkalega góð“ Tugir tilkynninga í viku: „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin“ Okkar McCartney, okkar Bach kveður Vasaþjófar gómaðir á Suðurlandi og minkafár í rénun Fleiri en einn hafi verið að verki Dýralæknafélag Íslands fordæmir skemmdarverk í Dalsbúi Gunnar Þórðarson er látinn Dregur úr ánægju með frammistöðu ríkisstjórnarflokkanna Sex handteknir grunaðir um vasaþjófnað Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Mosfellsdalur minnti á vígvöll Greinir á um leiðir til að draga úr nikótínneyslu ungmenna Sjá meira