Innlent

Flæðir yfir beggja megin Steinafjalls

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Vatn flæddi yfir veginn vestan við Holtsá var að bresta síðdegis og flæðir yfir á um 200 metra kafla, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Hvolsvelli. Það flæðir því yfir beggja megin Steinafjalls í Eyjafjallajökli því að fyrr í dag byrjaði að flæða úr Svaðbælisá. Vatnsflaumurinn fer vaxandi en veginum hefur ekki enn verið lokað. Lögreglan segir að hægt sé að fara yfir ef menn fari mjög varlega.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×