Innlent

Tveir skjálftar í Vatnajökli

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Vatnajökull. Skjálftinn varð suðvestur af Bárðarbungu.
Vatnajökull. Skjálftinn varð suðvestur af Bárðarbungu.
Jarðskjálfti að stærð 3,7 á Richter varð við Hamarinn undir norðvestanverðum Vatnajökli um klukkan 24 mínútur í tólf að miðnætti í gær. Fyrr um kvöldið, eða laust eftir klukkan níu, varð jarðskjálfti að stærð 3,4 á sama stað. Um tveir tugir eftirskjálfta hafa fylgt þessum skjálftum, samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni. Hamarinn er megineldstöð suðvestur af Bárðarbungu. Veðurstofan segir að enginn gosórói hafi mælst.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×