Innlent

Miklir vatnavextir á Suðurlandi

Gissur Sigurðsson skrifar
Lögreglan á Hvolsvelli varar ferðamenn í Rangárþingi-eystra og í Vestur- Skaftafellssýslu við miklum vatnavöxtum í ám á svæðinu og að búast megi við að víða flæði upp á vegi. Seint í gærkvöldi var vatnsborðið í Svaðbælisá á þjóðvegi eitt, undir Eyjafjöllum, til dæmis komið upp undir brúargólfið. Vatnavöxtur er líka í ám á hálendinu og varar lögregla ferðamenn á heimleið við þeim og beinir því til ferðamanna, að þeir leggi ekki á hálendið í dag. Mikið rigndi á þessu svæði í gær og í nótt, þannig að ekki er farið að sjatna í ánum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×