Innlent

Innlyksa eftir að vegur fór í sundur

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Það voru gríðarlegir vatnavextir á Suð-Austurlandi vegna vatnavaxtanna eins og þessi mynd ber með sér.
Það voru gríðarlegir vatnavextir á Suð-Austurlandi vegna vatnavaxtanna eins og þessi mynd ber með sér.
Gríðarleg rigning var í nótt á Suð - Austurlandi með þeim afleiðingum að mikið óx í ám í Vestur -Skaftafellssýslu.

Árni Ingvar Bjarnason sendi þessa mynd af Þverá, sem er lítil hliðará sem fellur í Geirlandsá. Samkvæmt upplýsingum frá honum var áin orðin að stórfljóti í morgun eftir 50 millimetra rigningu og rofnaði vegurinn við brú á veginum.

Þar eru tveir bæir sem eru innan við ána og er Árni Ingvar Bjarnason á öðrum bænum ásamt fjölskyldu sinni. „Á öðrum bænum erum við nokkur sem höfum verið hérna um helgina. Það er hérna ein fjölskylda sem þarf að komast til Reykjavíkur," segir Árni. Þau komast hins vegar hvergi á meðan að vegurinn er rofinn.

Árni segir að það hafi byrjað að rigna í gær og rignt hressilega uppi á fjöllum. Hann segir að fulltrúi frá Vegagerðinni hafi verið að skoða aðstæður fyrr í dag. Hann vonist til þess að hægt verði að gera við veginn fyrir dagslok.

Veðrið hefur haft mikil áhrif og hefur lögreglan á Hvolsvelli séð ástæðu til að vara ferðamenn í Rangárþingi-eystra og í Vestur- Skaftafellssýslu við miklum vatnavöxtum í ám. Búast megi við að víða flæði upp á vegi. Seint í gærkvöldi var vatnsborðið í Svaðbælisá á þjóðvegi eitt, undir Eyjafjöllum, til dæmis komið upp undir brúargólfið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×