Innlent

Vonskuveður á Snæfellsnesi

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Björgunarsveitarmenn úr Lífsbjörg við störf í morgun.
Björgunarsveitarmenn úr Lífsbjörg við störf í morgun.
Mikið rok er nú á norðanverðu Snæfellsnesi og hafa vindhviður farið upp í 40 m/s á Gufuskálum. Í hádeginu bárust björgunarsveitinni Lífsbjörg í Snæfellbæ nokkrar hjálparbeiðnir.

Áttatíu fermetra þak fauk af plastverksmiðjunni á Hellissandi og á haf út og náðu menn að koma í veg fyrir að enn meira tjón hlytist af og myndir eru af plastverksmiðjunni.

Þá var unnið við að festa niður þak á vatnsverksmiðju á Rifi sem er í byggingu. Auk þess þurfti að huga að hesthúsum og heimahúsi þar sem þak og klæðningar voru að losna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×