Innlent

Um 120 manns fastir í Þórsmörk

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Um 120 manns eru fastir í Þórsmörk vegna mikilla vatnavaxta í ánum þar. Að sögn Klemenzar Klemenzsonar, skálavarðar í Húsadal, er ekkert útlit fyrir að það fari að sjatna í ánum fyrr en seinnipartinn á morgun eins og veðurspáin er núna.

Klemenz segir að þessa stundina sé úrhellis rigning og allar ár meira og minna ófærar. Fólk sitji því bara fast. „Sem betur fer er enginn að reyna að fara eitt né neitt," segir Klemenz og bætir við að það væri afar glæfralegt að reyna að fara eitthvað miðað við stöðuna eins og hún er núna.

Fólkið sem er fast í Þórsmörkinni er í hópum sem skiptast nokkuð jafnt á Húsadal, Langadal og Bása.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×