Auðlindir þarf að skoða heildstætt 23. september 2010 03:15 Iðnaðarráðherra segir ríkið ekki munu selja orkufyrirtæki. Fréttablaðið/GVA
Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra segir að verja þurfi sameiginlegt eignarhald þjóðarinnar á auðlindum og tryggja áhrif ríkisins á hvernig orkunni sé ráðstafað. Þetta sagði hún á málþingi um orkumál í gær, en það var haldið af stýrihópi ráðuneytisins um mótun heildstæðrar orkustefnu. Ráðherra sagði að skoða þyrfti auðlindamál heildstætt þar sem tekið væri jafnt á orkumálum sem og fiskistofnum og olíuvinnslu. „Skýran lagaramma þarf utan um hvernig á að verja varanlegt eignarhald þjóðarinnar á sameiginlegum auðlindum sínum og hvernig við úthlutum nýtingarrétti gegn sanngjörnu afgjaldi,“ sagði Katrín. Hún bætti því við að kostir fylgdu því að fá einkafjármagn inn í orkuvinnslu, hvort sem er innlent eða erlent, en ekki stæði til að selja orkufyrirtæki í eigu ríkisins. Þá vildu stjórnvöld hafa áhrif á hvernig orku yrði ráðstafað. Í stað þess að ný og smærri verkefni þyrftu sífellt að mæta afgangi frá stóriðju vilja stjórnvöld stuðla að meiri fjölbreytni. Skilgreint verður hvers lags iðnaður sé fýsilegur og eftir það lagt kapp á að sækja slíkt til landsins. - þj
Mest lesið Féll fram af svölum á hjúkrunaheimili og lést Innlent Starfsemi Hvals mögulega í uppnám: Hefur ekki svarað eftirlitinu frá því í maí Innlent Hvalur háði hálftíma dauðastríð Innlent „Hagið ykkur eins og fullorðið fólk“ Innlent Lögreglan leitar að Cezary Innlent Rennibrautinni lokað og ljósin skoðuð Innlent Komst á bragð skemmdarverka í baráttunni við Kristján Loftsson Innlent Mokgræðir á rafmyntum Innlent Hanna Katrín eigi að standa með starfsfólki Hvals – ekki gagnrýna það Innlent „Hverjir hafa efni á því að kaupa gramm af kókaíni?“ Innlent Fleiri fréttir Tveimur sagt upp á Bifröst Enn eitt fíkniefnametið slegið og yfirvöld hvött til að afturkalla hvalveiðileyfi Rennibrautinni lokað og ljósin skoðuð Hvalur háði hálftíma dauðastríð Hanna Katrín eigi að standa með starfsfólki Hvals – ekki gagnrýna það Gómuð af tollinum með tvo lítra af kókaíni innvortis Komst á bragð skemmdarverka í baráttunni við Kristján Loftsson Mokgræðir á rafmyntum Séra Þórir Stephensen er látinn Féll fram af svölum á hjúkrunaheimili og lést Lögregla rannsakar tvö innbrot í miðborginni Sér Blönduós eflast með byggðalínu og virkjunum Mímósuísinn ljúffengur en gerir aldrei aftur Jägermeister-ís Ógn felist í hótunum Paul Watson-samtakanna Lögreglan leitar að Cezary Aflvana togari hættulega nálægt landi Vegum lokað og bílar taldir Starfsemi Hvals mögulega í uppnám: Hefur ekki svarað eftirlitinu frá því í maí Segir verk Þórbergs enn ótrúlega lifandi „Hagið ykkur eins og fullorðið fólk“ „Hverjir hafa efni á því að kaupa gramm af kókaíni?“ Stærsta kókaínmál Íslandssögunnar og ráðherra sakar starfsmenn Hvals um fíflaskap Lokaeinkunnirnar vísbending um ósamræmda einkunnagjöf Komu slösuðum til bjargar í Drangey Hátt í þriggja milljarða króna virði af kókaíni Tímamót hjá Klettaskóla: „Allir mjög peppaðir“ Spiluðu þjóðsönginn á meðan hvalurinn var dreginn á land Gómaður með tæp sextíu kíló af amfetamíni og „bleikt kókaín“ Níu í haldi fyrir að smygla yfir hundrað kílóum af kókaíni í sjókistu Stefnt á kappræður milli utanríkisráðherra Sjá meira