Stones í Kringlubíói 23. september 2010 06:00 Gítarleikarinn Keith Richards í hörkustuði á tónleikum í Bandaríkjunum árið 1972. Mynd/Nordicphotos, Getty
Tónleikamyndin Ladies & Gentlemen: The Rolling Stones frá 1974 verður sýnd í endurbættri útgáfu í Kringlubíói í kvöld. Aðeins verður um þessa einu sýningu að ræða. Myndin var tekin upp á fernum tónleikum á ferðalagi Stones um Bandaríkin 1972 til að fylgja eftir plötunni Exile on Main Street. Myndin verður sýnd í endurhljóðblandaðri háskerpuútgáfu en hún var á sínum tíma tekin upp á 16mm filmu. Hún var síðan stækkuð í 35mm útgáfu áður en hún var sýnd í kvikmyndahúsum. Þar til nú hefur myndin aldrei verið gefin út opinberlega á VHS-spólu eða DVD-diski síðan hún kom út, nema í Ástralíu þar sem hún kom út á VHS í byrjun níunda áratugarins. Undanfarin ár hefur hún eingöngu verið fáanleg í bootleg DVD-útgáfu. Í myndinni var reynt að líkja sem mest eftir tónleikaupplifun áhorfenda. Fólki í nokkur hundruð manna sal átti að líða eins og það væri á tíu þúsund manna Stones-tónleikum. Til þess var notast við svokallað Quadrasound-hljóðkerfi í stað hins hefðbundna Surround-kerfi. Hljómsveitin The Rolling Stones var í miklu stuði á þessum tíma, enda nýbúin að gefa út eina af sínum bestu plötum. Exile on Main Street fékk reyndar misjafna dóma þegar hún kom út en hefur í tímans rás verið talin eitt besta verk sveitarinnar, enda var hún endurútgefin fyrr á árinu í viðhafnarútgáfu. Á meðal þekktra laga sem hljóma í tónleikamyndinni eru Brown Sugar, Midnight Rambler, Tumbling Dice, Street Fighting Man og Jumpin’ Jack Flash. -fb
Mest lesið Helvíti á jörðu: Emmsjé Gauti minnti á líkamsræktarþjálfara í maníu Gagnrýni Hefur misst vini og kunningja vegna skoðana sinna Lífið Veikindi eyðilögðu líka stóru stund Manúelu Lífið „Ég hugsa til þín á hverjum einasta degi“ Lífið Stjörnulífið: Óskar tíkunum gleðilegra jóla Lífið Leitin á Svínafellsjökli sem hefur enn ekki skilað árangri Lífið Wire-stjarna látin langt fyrir aldur fram Bíó og sjónvarp Kimmel ávarpar bresku þjóðina: Frábært ár fyrir fasisma Lífið Bestu, stærstu, slökustu og verstu myndir ársins 2025 Bíó og sjónvarp Einmana um jólin og sex góð ráð Áskorun Fleiri fréttir Kimmel ávarpar bresku þjóðina: Frábært ár fyrir fasisma „Ég hugsa til þín á hverjum einasta degi“ Stjörnulífið: Óskar tíkunum gleðilegra jóla Veikindi eyðilögðu líka stóru stund Manúelu Hefur misst vini og kunningja vegna skoðana sinna Leitin á Svínafellsjökli sem hefur enn ekki skilað árangri Krakkatía vikunnar: Ísskápastríð, Eivör og Grafarvogur „Við byrjuðum að hlusta á jólalög í júlí“ Frægir fundu ástina 2025 Íslenska stelpan sem gerðist mormóni Fréttatía vikunnar: Rob Reiner, Dóra Björt og fullir unglingar 500 Esjuferðir á árinu: „Sumir hrista bara hausinn og lygna augunum“ Útgefandi Walliams lætur hann róa Fáklæddir barþjónar þegar Regnboginn opnaði í Bíó Paradís Þriðja stigs krabbameinið það besta sem kom fyrir hann Dúnninn bakaður í fjóra sólarhringa til að drepa allt í honum Heilsu krónprinsessunnar hrakar gríðarlega Pete orðinn pabbi Nýkominn úr meðferð og „sjaldan verið betur nýsleginn túskildingur“ Laufey á lista Obama „Ég heyrði þá kalla á mig en gat engu svarað“ Opnar sig í fyrsta sinn: Kyssti yfirmanninn í fyrsta sinn þetta kvöld Sex hundruð ára kastali Björns í Frakklandi svo gott sem klár Fyrirsát að Valgerði, Stund Pírata og meint alzheimer Þráins Bertelssonar „Það jafnar sig enginn eftir svona og við munum aldrei gera það“ Ungir sjálfstæðismenn gefa út vandræðalegt fjölskyldudagatal Keough sögð líffræðileg móðir Benjamin Travolta Rússland aftur í Eurovision - undirskriftasöfnun Óskarsverðlaununum streymt á Youtube Karmað muni bíta þjófinn í rassinn þegar títan og glyttan byrja að dansa í hitanum Sjá meira