Innlent

Átakið framlengt til áramóta

Markaðsátakið Inspired by Iceland virðist bera ávöxt og hefur verið framlengt til áramóta.  Fréttablaðið/GVA
Markaðsátakið Inspired by Iceland virðist bera ávöxt og hefur verið framlengt til áramóta. Fréttablaðið/GVA
Ferðamenn Markaðsátakið Inspired by Iceland virðist hafa borið nokkurn árangur í því að bæta ímynd Íslands á erlendri grundu, að því er fram kemur í tilkynningu frá framkvæmdanefnd átaksins. Vísað er til nýlegrar könnunar MMR sem mældi viðhorf til Íslands í Bretlandi, Þýskalandi og Danmörku.

Könnunin leiðir í ljós að á milli maí og ágúst jókst í öllum löndunum hlutfall þeirra sem sögðust jákvæðir fyrir því að ferðast til Íslands. Fjórðungsaukning var meðal Dana þar sem 67 prósent eru nú jákvæð fyrir Íslandsferð og 40 prósent telja líklegt að þau muni einhvern tíma leggja leið sína norður á Frón.

Hlutfall þeirra Breta sem sjá Ísland sem ákjósanlegan áfangastað í framtíðinni óx úr 26 prósentum upp í 39 prósent og hjá Þjóðverjum fór hlutfallið úr 48 prósentum upp í 60 prósent.

Alls telja 34 prósent Þjóðverja nú líklegt að þau eigi eftir að ferðast til Íslands og 21 prósent Breta. Alls var gert ráð fyrir að kostnaður við átakið yrði 700 milljónir króna, en enn eru rúmar 100 milljónir ónýttar. Var því ákveðið að framlengja átakið til áramóta og verður áherslan nú lögð á Bretland og Bandaríkin. - þj

Tengdar fréttir

Safnar áfram tækjum fyrir sjúklinga

Samfélagsmál Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS) fékk góðar gjafir á dögunum, en Þorbjörg Elín Friðriksdóttir og fjölskylda afhentu stofnuninni ytri öndunarvél, vökvadælu, og tvo hjólastóla. Þessi tæki eru afrakstur söfnunar sem Þorbjörg hefur staðið fyrir, en hún er sjálf sjúklingur á HSS.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×