Rússar vilja Drekann 23. september 2010 18:43
Þótt Ísland geri engar kröfur um yfirráð á Norðurheimskautinu gæti landið haft umtalsverðar tekjur af umsvifum sem þar verða á komandi árum. Pútín Rússlandsforseti lýsir áhuga rússneskra orkufyrirtækja á olíuleit á Drekasvæðinu. Ísland er eitt tíu ríkja sem eiga sæti í Norðurskautsráðinu. Ráðið er nú á fundi í Moskvu. Það sem hæst ber þar eru kröfur þeirra ríkja sem gera tilkall til yfirráða á vissum svæðum á Norðurheimsskautinu. Það eru Rússland, Bandaríkin, Kanada, Danmörk og Noregur. Þarna er ekki um að ræða hefðbundnar kröfur um landhelgi heldur stendur deilan um það hversu mikið af Lemonosov fjallgarðinum sé framhald af landgrunni hverrar þjóðar fyrir sig. Þarna eru miklir hagsmunir í húfi því talið er að á þessu svæði sé að finna fjórðung af olíu- og gaslindum sem enn eru ófundnar á jörðinni. Ísland gerir enga kröfu til yfirráða en gæti hinsvegar haft verulegar tekjur af þróun mála í framtíðinni. Ólafur Ragnar Grímsson forseti hefur undanfarna tvo daga átt fundi bæði með Dmitry Medvedev, forseta Rússlands, og Vladimir Putin, forsætisráðherra. Báðir hafa lagt áherslu á að þeir vilji aukið samstarf þjóðanna vegna fyrirsjáanlegrar þróunar á norðurslóðum næstu árin. Vladimir Putin sagði að sameiginlegir hagsmunir á Norðurslóðum, nýting orkulinda og nýjar siglingaleiðir kölluðu á aukin samskipti. Putin lýsti einnig áhuga á að kanna möguleika á olíuleit á Drekasvæðinu og hvatti til þess að íslenskir aðilar tækju virkan þátt í jarðhitanýtingu á Kamstjakasvæðinu í Síberíu.
Mest lesið Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Innlent „Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ Innlent Ráðgjafar áhyggjufullir og Trump gerði hlé á árásum Erlent Áhrifavaldur drepin eftir hún minntist á ásakanir í garð eiginmannsins Erlent Hafi sagt að ekki mætti gefa svo mikið morfín en gerði það samt Innlent Fokin tjöld og slagsmál á Bræðslunni Innlent „Uppáhaldið“ hans Epsteins mun erfa veldið Erlent Stærsta rafflugvélin fær grænt ljós á fyrsta flug Innlent Lýsa eftir þekktum öfgamanni Erlent Fluttur á bráðamóttökuna eftir vinnuslys í Kópavogi Innlent Fleiri fréttir Umræða í hnút: Hann segir, hún segir, þarna stendur... hvað er rétt? „Alltaf tortryggin gagnvart boði um gull og græna skóga“ „Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ Hafi sagt að ekki mætti gefa svo mikið morfín en gerði það samt Strandaglópar á Spáni og vont veður á Brennslunni Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Fokin tjöld og slagsmál á Bræðslunni Fluttur á bráðamóttökuna eftir vinnuslys í Kópavogi Evrópumálin, sala áfengis og kjarasamningar á Sprengisandi Stærsta rafflugvélin fær grænt ljós á fyrsta flug Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Sjá meira