Innlent

Rússar vilja Drekann

Þótt Ísland geri engar kröfur um yfirráð á Norðurheimskautinu gæti landið haft umtalsverðar tekjur af umsvifum sem þar verða á komandi árum. Pútín Rússlandsforseti lýsir áhuga rússneskra orkufyrirtækja á olíuleit á Drekasvæðinu.

Ísland er eitt tíu ríkja sem eiga sæti í Norðurskautsráðinu. Ráðið er nú á fundi í Moskvu. Það sem hæst ber þar eru kröfur þeirra ríkja sem gera tilkall til yfirráða á vissum svæðum á Norðurheimsskautinu. Það eru Rússland, Bandaríkin, Kanada, Danmörk og Noregur.

Þarna er ekki um að ræða hefðbundnar kröfur um landhelgi heldur stendur deilan um það hversu mikið af Lemonosov fjallgarðinum sé framhald af landgrunni hverrar þjóðar fyrir sig.

Þarna eru miklir hagsmunir í húfi því talið er að á þessu svæði sé að finna fjórðung af olíu- og gaslindum sem enn eru ófundnar á jörðinni. Ísland gerir enga kröfu til yfirráða en gæti hinsvegar haft verulegar tekjur af þróun mála í framtíðinni.

Ólafur Ragnar Grímsson forseti hefur undanfarna tvo daga átt fundi bæði með Dmitry Medvedev, forseta Rússlands, og Vladimir Putin, forsætisráðherra. Báðir hafa lagt áherslu á að þeir vilji aukið samstarf þjóðanna vegna fyrirsjáanlegrar þróunar á norðurslóðum næstu árin.

Vladimir Putin sagði að sameiginlegir hagsmunir á Norðurslóðum, nýting orkulinda og nýjar siglingaleiðir kölluðu á aukin samskipti. Putin lýsti einnig áhuga á að kanna möguleika á olíuleit á Drekasvæðinu og hvatti til þess að íslenskir aðilar tækju virkan þátt í jarðhitanýtingu á Kamstjakasvæðinu í Síberíu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×