Frekari rannsóknir verði á Drekasvæði 4. janúar 2010 05:00 Guðni A. Jóhannesson
Æskilegt væri að bæta rannsóknir á Drekasvæðinu áður en farið verður í útboð á leit og vinnslu olíu á ný, að mati sérfræðinga erlendra olíufyrirtækja. Þetta kom fram í jólaávarpi Guðna A. Jóhannessonar orkumálastjóra til starfsmanna Orkustofnunnar. Tvö fyrirtæki sem sótt höfðu um leyfi til rannsókna og vinnslu á olíu og gasi á svæðinu drógu tilboð sín til baka síðastliðið haust. Í kjölfarið voru teknar upp viðræður við fyrirtæki sem sendu inn tilboð, fyrirtæki sem lögðu í greiningarvinnu en sendu ekki inn tilboð, og fyrirtæki sem ekki höfðu áhuga á útboðinu, segir Guðni í samtali við Fréttablaðið. „Við erum að reyna að skapa okkur sem besta mynd af því hvernig við eigum að haga framhaldinu. Við ætlum ekki að hlaupa í nýtt útboð fyrr en við eigum von á jákvæðum undirtektum," segir Guðni. Hann tekur þó fram að komi fyrirtæki og lýsi áhuga á ákveðnum hluta svæðisins verði hægt að setja þau í útboð. Starfsmenn Orkustofnunar áttu nýverið fundi með sérfræðingum rúmlega tíu fyrirtækja í olíuiðnaðinum, segir Guðni. Rætt hafi verið við starfsmenn þróunardeilda olíufyrirtækja, en einnig sérfræðinga hjá fyrirtækjum sem sérhæfa sig í að rannsaka vænleg svæði, og selja svo olíufyrirtækjum niðurstöður sínar. Á þeim fundum kom fram að æskilegt væri að gera nákvæmari hljóðbylgjumælingar á hafsbotni á Drekasvæðinu, auk þess sem taka ætti sýni af hafsbotni til að reyna að sjá merki um kolvetni. Guðni segir að með því hafi verið mælt með því að það net rannsókna sem nú sé fyrir hendi verði þétt. Viðræðum við áhugasöm fyrirtæki verði væntanlega haldið áfram á næstunni, meðal annars til að kanna hvernig hægt sé að gera viðbótarrannsóknir með sem minnstum tilkostnaði. Guðni segir enga örvæntingu hafa gripið um sig á Orkustofnun þrátt fyrir að bæði fyrirtækin sem sóttu um leyfi til rannsókna og vinnslu á Drekasvæðinu hafi dregið tilboð sín til baka. Ástandið á fjármagnsmörkuðum sé þannig að eðlilegt sé að fara sér rólega. „Tíminn vinnur með okkur, fyrr eða síðar fara menn á þetta svæði með meiri alvöru, en reynsla annarra þjóða sýnir að það getur tekið einhvern tíma," segir Guðni.-bj
Mest lesið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Erlent Skothvellir við Hvíta húsið Erlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Lögreglan lýsir eftir Arnóri Guðmundssyni Innlent Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni Innlent Almennur borgari veitti bílnum eftirför Innlent Tómas tjáir sig um dóminn Innlent Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Innlent Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Innlent Fleiri fréttir Lögreglan lýsir eftir Arnóri Guðmundssyni „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Verðlaunuð fyrir að bjóða unglingum upp á Sveitasælu Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Margrét Helga til Ríkisútvarpsins Nýr meirihluti í Hörgársveit Frumvarp um brottfararstöð úr nefnd í næstu viku Kjaftfullt í golfinu í Grindavík Sjá meira