Austurbæjarbíó lifnar við 1. maí 2010 09:00 Hið fornfræga Austurbæjarbíó verður opnað að nýju í haust. Þóroddur Stefánsson, sem hefur keypt húsið, hyggst koma því í upprunalegt horf en reikna má með fjölbreyttri starfsemi þar.
Þóroddur Stefánsson, oftast kenndur við Bónusvídeó-keðjuna, hefur keypt Austurbæjarbíó sem stendur við Snorrabraut. Iðnaðarmenn vinna nú hörðum höndum að því að koma húsinu í gott stand en þetta fornfræga kvikmyndahús og tónleikastaður hefur verið nánast gleymdur og grafinn í miðborg Reykjavíkur. Þóroddur segir það hálfgerðan skandal hversu mikið húsnæðið hefur fengið að grotna niður. Þóroddur keypti húsnæðið fyrir nokkrum mánuðum en Arionbanki átti það. „Ég ætla að gera það allt upp og koma glæsileika þess í upprunalegt horf. Ég hef alltaf haft gaman af svona fallegum húsum og það er í raun hryllilegt að sjá hvernig komið hefur verið fram við það,“ segir Þóroddur sem ætlar þó ekkert að stressa sig á þessu og tekur fram að hann ætli að gera þetta allt í rólegheitunum. „Þetta verður opnað einhvern tímann í haust, það er svona hugmyndin.“ Þóroddur hefur sett stefnuna á að koma á fót flottu viðburðahúsi þar sem tónlistarmenn og aðrir listamenn geta sýnt sköpun sína. Þá er hugmyndin sú að reisa veitingastað á annarri hæð hússins en þar var áður hinn frægi veitingastaður Silfurtunglið. Þóroddur segir leifarnar af veitingastaðnum vera þar enn þá. Þóroddur hefur lítið látið fyrir sér fara undanfarin ár. Hann er einn hluthafa í viðburðafyrirtækinu 3sagas sem Árni Þór Vigfússon og Kristján Ra Kristjánsson reka í Svíþjóð. Þóroddur tekur þó fram að þeir tveir komi hvergi nálægt þessu verkefni. Austurbæjarbíó hefur lengi leikið stórt hlutverk í menningarlífi höfuðborgarinnar frá því að það var vígt árið 1947. Tónlistarfélag Reykjavíkur var þarna fyrst og Sinfóníuhljómsveit Íslands þreytti frumraun sína á sviði Austurbæjarbíós fyrir allmörgum áratugum. Þá hefur fjöldi leikrita verið sett upp í húsnæðinu af bæði sjálfstæðum leikhópum og Leikfélagi Reykjavíkur og ekki má gleyma frægri tónleikaröð Svavars Gests, Ellýjar Vilhjálms og Ragnars Bjarnasonar í Silfurtunglinu. Margir af eldri kynslóðinni muna eflaust eftir kvikmyndasýningum um söngelska kúrekann Roy Rogers sem Friðrik Þór Friðriksson gerði ódauðleg skil í kvikmyndinni Bíódögum. Á seinni árum rak Samfilm Bíóborgina í húsnæðinu en undanfarin ár hefur starfsemin verið nokkuð skrykkjótt, síðast hýsti Austurbæjarbíó Hús unga fólksins sem Rauði Krossinn, Samfélagið Frumkvæði, Hitt húsið og Félag framhaldsskóla stóðu að. freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið Drakk ógeðslega illa og hætti eftir blindafyllerí Lífið „Aldrei grátið jafn mikið af gleði“ Lífið Stjörnulífið: Suðræn sæla og seiðandi kroppar Lífið „Það eru smá blendnar tilfinningar að vera farin“ Lífið „Öruggt athvarf fyrir hinsegin samfélagið“ Lífið Glatkistunni lokað Menning Einar fékk meira hár en Baldur Lífið Travolta klæddi sig óvænt upp sem Danny Zuko Lífið Elliot Page frumsýndi nýju kærustuna á Skólavörðustígnum Lífið Grindavík sigursæl erlendis Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Einar fékk meira hár en Baldur „Öruggt athvarf fyrir hinsegin samfélagið“ Stjörnulífið: Suðræn sæla og seiðandi kroppar Drakk ógeðslega illa og hætti eftir blindafyllerí „Aldrei grátið jafn mikið af gleði“ „Það eru smá blendnar tilfinningar að vera farin“ Travolta klæddi sig óvænt upp sem Danny Zuko Elliot Page frumsýndi nýju kærustuna á Skólavörðustígnum Skordýrabrúðkaup í Laugardalslaug Krakkatían: Leikhópurinn Lotta, fótboltamót og sumarsólstöður Sonur Rögnu og Árna fæddur Einn með fyrsta vinning og vann tæpar 54 milljónir Lilja Sif Pétursdóttir krýnd Miss Supranational Europe og talin myndfríðust Fréttatía vikunnar: Leiðtogafundur, Hollywood-stjarna og umdeilt brúðkaup Stefnir á sigur í stærstu kokkakeppni heims Áslaug selur glæsiíbúð í Reykjavík Vægar viðreynslur en engir pervertar Martin Österdahl hættir hjá Eurovision Kyana og Viktor giftu sig undir berum himni Beckham á spítala Albert og Guðlaug saman í fríi á Ibiza Byggir á viðskiptamódeli bandarískrar trúboðsstöðvar Eurovision aðdáendur flykkjast enn til Húsavíkur Wintour víkur úr ritstjórastólnum eftir 37 ár Hundruðir gengu skrúðgöngu í Laugardal Íslensku sjónvarpsverðlaunin veitt í fyrsta sinn í október Búið spil hjá Katy Perry og Orlando Bloom Súrrealísk upplifun í prinsessuleik í Versölum Sögulegt hús fær nýtt líf: Hafnfirðingar hrannast inn, segja sögur og þakka fyrir Purrkur Pillnikk spilar á Innipúkanum Sjá meira