Innlent

Slökkviliðsmanna að meta gæði samningsins

Sverrir Björn Björnsson.
Sverrir Björn Björnsson.
Sverrir Björn Björnsson, formaður samninganefndar Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna, segir að það sé félagsmanna að meta hvort samkomulagið sem landssambandið og Launanefnd sveitarfélaga undirrituðu í dag sé gott. Í samtali við fréttastofu vildi hann ekki greina frá hvað felst í samkomulaginu. „Innihald samningsins er ekki gefið upp að svo komnu máli. Við kynnum það fyrst fyrir okkar félagsmönnum."

Sverrir sagði að ríkissáttasemjari hafi lagt sáttatillöguna fram á fundi með deiluaðilum seinnipartinn í dag. Samkvæmt samkomulaginu hefur verkfallsaðgerðum verið frestað þangað til atkvæðagreiðsla hefur farið fram um það meðal slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna.


Tengdar fréttir

Slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn búnir að semja

Kjarasamningur hefur tekist á milli samninganefnda Landsambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna og Launanefndar sveitarfélaga. Verið er að fagna honum í húsnæði Ríkissáttasemjara þessa stundina. Slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn hafa verið samningslausir í heilt ár.

Samningaviðræður vel á veg komnar

Samningafundur milli Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna hefur staðið yfir frá því um eittleytið í dag. Viðræður hafa gengið vel í dag samkvæmt upplýsingum Vísis.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×