Innlent

Slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn búnir að semja

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Kjarasamningur hefur tekist á milli samninganefnda Landsambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna og Launanefndar sveitarfélaga. Verið er að fagna honum í húsnæði Ríkissáttasemjara þessa stundina. Slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn hafa verið samningslausir í heilt ár.

Verkfallsaðgerðir þeirra hafa vakið mikla athygli, en þær hafa staðið yfir allan ágústmánuð. Yfirvinnubann stóð yfir og sextán klukkustunda verkfall áformað næsta föstudag. Þessum aðgerðum hefur nú verið frestað.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×