Nágranni kærir og eigandi vill bætur 21. janúar 2010 05:00 Enn Bitbein Deilan um sjávarlóðina í Miðskógum 8 hefur staðið árum saman og heldur enn áfram.
Eigendur lóðarinnar Miðskóga 8 krefja bæjaryfirvöld á Álftanesi um 13,2 milljónir króna í „uppsafnaðan kostnað“ vegna „ólöglegrar meðferðar“ á umsókn þeirra um byggingarleyfi fyrir einbýlishúsi allt frá árinu 2005 þar til í haust að leyfið var veitt. Nágranni lóðareigendanna, íbúi í Miðskógum 6, hefur hins vegar fyrir sitt leyti kært byggingarleyfið til úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála. „Í undirbúningi er að óska eftir því við umboðsmann Alþingis að hann skoði málið,“ segir meðal annars í kæru Kristjáns Sveinbjörnssonar til úrskurðarnefndarinnar. Eins og fram hefur komið er Kristján bæjarfulltrúi á Álftanesi og fyrrverandi forseti bæjarstjórnar. Eigendur Miðskóga 8 sundurliða áðurnefnda 13,2 milljóna króna kröfu í þóknun til lögmanna, hönnunarkostnað, sérfræðikostnað og fjármagnskostnað. Segjast þeir reiðubúnir til að ræða kröfu sína „í samhengi“ við 7,8 milljóna króna kröfu sveitarfélagsins á hendur þeim vegna gatnagerðar- og byggingargjalda. Þess má síðan geta að tveir eigenda Miðskóga 8, hjónin Hlédís Sveinsdóttir og Gunnar Árnason, reka nú meiðyrðamál á hendur Kristjáni Sveinbjörnssyni og sveitarfélaginu Álftanesi fyrir óhróður sem birtur var á heimasíðu sveitarfélagsins árið 2008. - gar
Mest lesið Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Innlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Hlýtt í dag en kuldi í kortunum Veður Bilið á milli turnanna breikkar Innlent Segja engan fund á dagskrá Erlent Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Erlent „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Innlent Fleiri fréttir Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Sjá meira