Innlent

Heppnir Frakkar

Tveir franskir ferðamenn sluppu ótrúlega vel frá umferðaóhappinu á Grindavíkurveginum nú fyrr í kvöld þegar vörubifreið með tengivagn valt við Seltjörn samkvæmt lögreglunni á Suðurnesjum.

Við óhappið lenti tengivagninn ofan á bifreið þeirra félaga. Sem fyrr segir sluppu þeir án teljandi meiðsla en bifreið þeirra er væntanlega ónýt og er unnið að því að ná tengivagninum ofan af bifreiðinni. Grindavíkurvegurinn er því enn lokaður.


Tengdar fréttir

Vörubifreið valt á Grindavíkurvegi

Vörubifreið með tengivagn valt fyrir skömmu á Grindavíkurvegi við Seltjörn samkvæmt lögreglunni á Suðurnesjum en þar er aftakaveður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×