Samanlagðir dómar brotamanna námu 334 árum 21. janúar 2010 06:00 Hegningarhúsið Undanþága til notkunar Hegningarhússins sem fangelsis rann út um áramót. Fangelsismálastofnun hefur farið fram á undanþágu til eins árs til viðbótar.
Óskilorðsbundnar fangelsisrefsingar sem dæmdar voru hjá dómstólum landsins á síðasta ári og sendar voru Fangelsismálastofnun til fullnustu eru samtals 334 ára fangelsisvist. „Þetta er hæsta tala sem við höfum séð í þessum efnum,“ segir Páll E. Winkel, forstjóri Fangelsismálastofnunar. „Síðasta met var árið 2007. Á því ári nam heildarrefsitíminn 300 árum.“ Páll segir þessa þróun á lengd heildarrefsitíma í samræmi við það sem fangelsisyfirvöld hafi verið búin að áætla og gera jafnframt grein fyrir í þarfagreiningu um framtíðaruppbyggingu í fangelsismálum. í dag eru 283 dómþolar á biðlista með 363 dóma alls. Refsitími þeirra er samtals 142,8 ár. Síðustu ár hafa verið í kringum 240 á biðlista. Spurður um framtíðarsýn í þessum efnum segir Páll að gera megi ráð fyrir að dómþolum fjölgi og refsingar haldi áfram að þyngjast, ekki síst vegna fjölda gæsluvarðhaldsfanga eins og dæmin sanni nú. „Opnun á bráðabirgðafangelsi að Bitru hjálpar upp á þetta ástand tímabundið,“ útskýrir Páll. „Þar verða allt að tuttugu pláss, sem komast í gagnið eftir mánuð eða svo. Áætlað er að hluti þeirra plássa, að minnsta kosti fimm þeirra, verði notuð fyrir afplánun sekta. Í næsta mánuði, þegar Bitra verður opnuð, verða menn, sem ekki hafa greitt sektir, boðaðir í afplánun, sem nánast hefur ekki verið gert að neinu leyti í nokkur ár vegna plássleysis. Það verður að grípa inn í þennan þátt líka, því sektir fyrnast að öðrum kosti. Meginmarkmiðið er að menn greiði sektir sínar og svo vill til að hafi þeir fengið boðun í Hegningarhúsið á ákveðnum degi, á ákveðnum tíma, þá greiða margir þeirra það sem þeim ber.“ Páll segir að í fjárlög þessa árs hafi verið sett inn heimild til að selja Hegningarhúsið og Kópavogsfangelsið og leita að hentugra húsnæði undir gæsluvarðhaldsfangelsi. „Ef af þessu verður er þetta fyrsta skrefið í þá átt að nýtt gæsluvarðhaldsfangelsi verði tekið í notkun í Reykjavík. Sparnaður fyrir lögreglu og fangelsismálakerfið yrði mikill auk þess sem gæsluvarðhaldsklefar á Litla-Hrauni yrðu líka notaðir sem afplánunarklefar.“ jss@frettbladid.is
Mest lesið Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Innlent Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Innlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Hlýtt í dag en kuldi í kortunum Veður Segja engan fund á dagskrá Erlent Bilið á milli turnanna breikkar Innlent Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Erlent Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Erlent Fleiri fréttir Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Sjá meira