Innlent

Ríkisstjórn fundar með stjórnarandstöðu

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Icesave verður rætt á fundi forystumanna ríkisstjórnarinnar og fulltrúum stjórnarandstöðunnar á eftir. Mynd/ Anton.
Icesave verður rætt á fundi forystumanna ríkisstjórnarinnar og fulltrúum stjórnarandstöðunnar á eftir. Mynd/ Anton.
Leiðtogar ríkisstjórnar hafa boðað fulltrúa stjórnarandstöðuflokkanna á Alþingi til fundar klukkan hálffimm í dag. Samkvæmt heimildum Vísis verður þar farið yfir stöðu mála varðandi Icesave.

Eins og kunnugt er hefur verið ákveðið að halda þjóðaratkvæðagreiðslu um Icesave lögin þann 6. mars næstkomandi. Það breytir hins vegar ekki því að stjórnvöld munu freista þess að taka upp samningaviðræður við Breta og Hollendinga að nýju.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×