Tíu rússneskir njósnarar handteknir í Bandaríkjunum 28. júní 2010 21:59 Barack Obama snæddi hamborgara með Medvedev í síðustu viku.
Bandaríkjamenn handtóku í dag tíu einstaklinga grunaða um að vera rússneskir njósnarar. Einn gengur enn laus. Ákærur á hendur njósnurunum hljóma líkt og reyfari frá Kalda stríðs árunum en fólkið hafði búið í Bandaríkjunum í um 20 ár og hafði það markmið að koma sér fyrir í mikilvægum stöðum í stjórnkerfinu. Í ákærunum á hendur fólkinu kemur fram að einhverjir rússnesku njósnarana áttu að búa saman sem hjón og áttu jafnvel börn til að auka á blekkinguna. Líkt og í góðum njósnamyndum þá liggja fyrir myndir af njósnurunum að skiptast á töskum á fjölförnum stöðum, bréf skrifuð á dulmáli og með ósýnilegu bleki og peningar faldir, grafnir á víðavangi, svo árum skiptir. Njósnararnir eru taldir vera á vegum S.V.R sem er nafnið á rússnesku leyniþjónustunni eftir að KGB leið undir lok með falli Sovétríkjanna. Rannsóknin á hendur njósnurunum stóð yfir í mörg ár. Talið er að njósnararnir hafi verið þjálfaðir í Moskvu og þeir svo sendir til Bandaríkjanna upp úr 1990. Þeir eru ákærðir fyrir njósnir og samsæri gegn Bandaríkjunum en við því eru þung viðurlög - allt að 20 ára fangelsisvist. Í umfjöllun erlendra fjölmiðla um málið kemur fram að það geti haft áhrif á samskipti Bandaríkjanna og Rússlands. Stutt er síðan Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, og Dimitry Medvedev, forseti Rússlands, hittust og ræddu um bætt samskipti ríkjanna tveggja. Andinn á fundi þeirra var svo góður að þeir skelltu sér á hamborgastað og gæddu sér á borgara og frönskum. Þá grunaði kannski fáum að enn væru rússneskir njósnarar á bandarískri grund.
Mest lesið Strandaglópar á Tenerife eftir að hafa verið meinaður aðgangur að flugi Innlent Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítala Innlent Þriðja flugbrautin í Keflavík „rosalega dýr framkvæmd“ Innlent „Ketamín-drottningin“ í fimmtán ára fangelsi Erlent Líbanon verið hluti af samkomulaginu og Trump þurfi að velja Erlent „Við eigum að hækka verðið á sykri“ Innlent Rex Heuermann játar að hafa myrt átta konur Erlent Engin vettlingatök hjá Röggu þegar Mummi sökk í jökulvatn Innlent Gerir ráð fyrir áframhaldandi hækkun bensínverðs Innlent Hormússund sagt lokað á ný Erlent Fleiri fréttir Strandaglópar á Tenerife eftir að hafa verið meinaður aðgangur að flugi Þriðja flugbrautin í Keflavík „rosalega dýr framkvæmd“ „Við eigum að hækka verðið á sykri“ Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítala Gerir ráð fyrir áframhaldandi hækkun bensínverðs Óvissa, ólögleg sala á áfengi og ósk um ný hljóðfæri Karlabyltingin hefst í Mosfellsbæ Stebbi Jak sýknaður af ákæru um líkamsárás Fyrsta pallborð fyrir kosningarnar í maí: Mosfellsbær á sviðið Dönsk þyrla með franskri herflutningavél til Íslands Bandaríkjaforseti gangi fram líkt og götustrákur Á brattann að sækja fyrir aðildarsinna Gífurlegir hagsmunir í húfi ef tæknin kemst í rangar hendur Vísindi á vordögum: Af hverju er offita enn þá vandamál? Hættuleg framþróun gervigreindarinnar, vopnahlé og kosningapallborð Töluverð skautun í málefnum Ísraels og Palestínu Engin vettlingatök hjá Röggu þegar Mummi sökk í jökulvatn Tveir fluttir á sjúkrahús eftir að eldur kviknaði í bílskúr Hvenær verður hlaðvarp að fjölmiðli? Braut rúðu eftir að hafa verið synjað um starf Næturlokunin komi sér afar illa fyrir fjölda íbúa Boða til mótmæla við bandaríska sendiráðið Meirihluti þeirra sem taka afstöðu andvíg aðild að ESB Gefur ekki mikið fyrir yfirlýsingar Trump um útrýmingu Íran Vinna áfram að alþjóðahöfn og iðnaðarsvæði í Finnafirði Hegðun Trumps vonbrigði Vitað um tíu dauðsföll af völdum eldinga hér á landi Kosningaspá Vísis: Lítill munur á vinstri og hægri í borginni Nýstaðinn upp þegar bárujárnið fauk inn um svefnherbergisgluggann Rafmagnslaust var í hluta Seltjarnarness og Vesturbæjar Sjá meira