Vilja að öllum nauðungarsölum á heimilum verði frestað 28. júní 2010 10:48
Hagsmunasamtök heimilanna skora á stjórnvöld að frysta tafarlaust eignir og fé í eigu fjármálastofnana til að standa undir skaðabótaábyrgð sem fyrirtækin kunna að hafa skapað sér í tengslum við nauðungarsölur byggðar á húsnæðis- og bílalánum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá samtökunum en þar segir einnig að þau krefjast þess að „öllum nauðungarsölum á heimilum verði frestað þar til lánveitendur gengistryggðra lána hafa viðurkennt lögbrot sín við útgáfu gengistryggðra lánasamninga og fært innheimtu þeirra úr sjálfsköpuðum jarðvegi lagalegrar óvissu." „Það er ólíðandi að fólk missi heimili sín á grundvellli lögbrots lánveitenda. Hagsmunasamtök heimilanna ítreka að baráttan fyrir leiðréttingu verðtryggðra lána stendur enn yfir og niðurstaða hæstaréttar um ólögmæti gengistryggingar breytir þar engu um," segir í tilkynningunni. „Stjórnvöld þurfa einnig að taka til greina að lánasamningar byggðir á verðtryggingu kunna að vera í sömu stöðu í ljósi forsendubrests sem hlotist hefur af markaðsmisnotkun fjármálafyrirtækja. Á næstu vikum munu bílalánafyrirtækin gefa okkur forsmekkinn að því hvernig bankarnir munu bregðast við (þau eru að mestu í eigu bankanna). Hagsmunasamtök heimilanna telja í ljósi sögunnar, nokkrar líkur á að bílalánafyrirtækin verði sett í gjaldþrotameðferð til þess eins að þurfa ekki að endurgreiða að fullu til viðskiptavina, ofreiknaða vexti auk ólögmætra verðbreytinga. Stjórnvöld þurfa að sjá við slíkum gjörningum og hugsanlega setja bráðabirgðalög til höfuðs undanbrögðum. Í húfi kunna að vera bæði vörsluskattar og endurgreiðslur til viðskiptavina þessara fyrirtækja."
Mest lesið Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Innlent Spurningunni verði breytt og svarið einfalt „Já“ eða „Nei“ Innlent Fjórar „brúðir ISIS“ snúa aftur til Ástralíu Erlent Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík Innlent „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Innlent Ákærður fyrir að veiða minka Innlent „Ásdís, stattu með samgöngusáttmálanum!“ Innlent Telja samkomulag líklegt á næstu dögum Erlent Hantaveiruskipið á leið til Kanarí og kemur ekki til Íslands Erlent Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Innlent Fleiri fréttir „Það má ekki eyða peningum sem Alþingi hefur ekki úthlutað“ „Ásdís, stattu með samgöngusáttmálanum!“ Breytt verklag útskýri hærri tölur í áhættumati Ákærður fyrir að veiða minka Eldur í mannlausri rútu í Laugardal Spurningunni verði breytt og svarið einfalt „Já“ eða „Nei“ Örlítið fleiri fæðingar en frjósemin stendur í stað Ein minniháttar líkamsárás á annars rólegri vakt lögreglu Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Hættum að vera þjóð ef við höldum ekki upp á íslenskuna Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Kona á sjötugsaldri lenti á sjúkrahúsi með 125 pakkningar innvortis Vill fjölga börnum sem eru eingöngu á brjósti til sex mánaða Burðardýr í bráðaaðgerð og hindranir í samstarfi Gögnum nemenda mögulega stolið af Canvas Mælti sér mót við barn og réðst á það Talstöðinni í Kópavogi lokað: Enginn talmeinafræðingur tilbúinn til að taka við rekstrinum Ný könnun í Kópavogi: Meirihlutinn heldur en Samfylking á siglingu Sættir sig ekki við niðurstöðu klofins Mannréttindadómstóls Hátt í hundrað heimili hugsanlega yfir tekjumörkum hjá Félagsbústöðum Herjólfur siglir frá Landeyjum og um þrjú prósent hjá Félagsbústöðum með tekjur umfram skilyrði Allt í blússandi botni í Bolungarvík þrátt fyrir lokun Kjörbúðarinnar Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Pallborðið: Kópavogsoddvitar mætast og glæný könnun Vonarneisti eftir erfiðan vetur Erla Björg ráðin menningarritstjóri Rúv Veðsjúkir giska á að Hildur verði næsti borgarstjóri Enn aðeins hægt að sigla til Landeyjahafnar við kjöraðstæður Sjá meira