Kindur af öskusvæðunum með sterka heimþrá 28. júní 2010 19:14 Kindurnar langar heim.
Kindurnar sem fluttu voru úr öskufallinu frá Eyjafjallajökli og austur í Skaftárhrepp hafa svo sterka heimþrá að þær leggjast til sunds yfir stórfljótin Skaftá og Kúðafljót og reyna að brjótast í gegnum girðingar. Svona hegða þær sér, kindur Eyfellinga og Mýrdælinga í nýju sumarhögunum í Meðallandi. Þær húka við girðinguna og pípuhliðið, sem lokar þær af í svæði Landgræðslunnar, en þarna er ein af fjórum jörðum sem 4.500 kindur af gossvæðinu fengu til afnota. Fanney Ólöf Lárusdóttir, bóndi og ráðunautur á Kirkjubæjarklaustri, segir að kindurnar leiti ákveðið í vesturátt, þannig að þær vita í hvaða átt þær eiga heima. Þær séu ekki áttavilltar. Það sé þekkt að sauðfé leiti í sína eigin sumarhaga. Hluti fjárins var á jörðinni Nýjabæ við Kirkjubæjarklaustur en þar tóku kindur upp á því að synda yfir Skaftá. Annað stórfljót sem kindurnar hafa reynt að komast yfir er sjálft Kúðafljót en þar hafa þær sést ramba á áreyrum. Hindranir eins og stórfljót og girðingar duga ekki til að varna því að sumar komist sína leið. Fanney Ólöf segir að þær muni væntanlega skila sér af heiðinni í haust.
Mest lesið „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Möguleiki á að úrslit ráðist ekki fyrr en í næstu viku Erlent Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Innlent Bókun 35 útskýrð á mannamáli Innlent Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Hverjir tala við mömmu mína?“ Innlent Munurinn minnkar í nýrri spá Erlent Fleiri fréttir „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sjá meira