Innlent

Óttast að missa sýslumanninn

Sýslumaðurinn á Patreksfirði á að bæta við sig embættinu á Ísafirði og hafa aðalbækistöð þar.
Sýslumaðurinn á Patreksfirði á að bæta við sig embættinu á Ísafirði og hafa aðalbækistöð þar.
Bæjarstjórn Vesturbyggðar óttast að sú ráðstöfun dómsmálaráðherra að fela sýslumanninum á Patreksfirði embættið á Ísafirði með aðalbækistöðvar þar í eitt ár sé undanfari þess að embættið á Patreksfirði verði lagt niður.

„Umdæmi sýslumannsins á Patreksfirði, það er Vesturbyggð og Tálknafjarðarhreppur, er mjög einangrað svæði. Samgöngur á milli þessara svæða liggja niðri hluta úr ári. Því er nauðsynlegt að í Vesturbyggð sé starfsstöð með góðri þjónustu og að þar starfi lögfræðingur," segir bæjarstjórnin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×