Innlent

Bankster og Jöklar á Íslandi fengu bókmenntaverðlaunin

Forseti Íslands afhenti í dag Íslensku bókmenntaverðlaunin við hátíðlega athöfn á Bessastöðum. Guðmundur Óskarsson hlaut verðlaunin í flokki fagurbókmennta fyrir bók sína Bankster og Helgi Björnsson hlaut verðlaunin í flokki fræðibóka og bóka almenns efnis fyrir verkið Jöklar á Íslandi.



Tilnefndar voru í flokki fagurbókmennta:

Böðvar Guðmundsson fyrir verkið Enn er morgunn, útgefandi Uppheimar

Guðmundur Óskarsson fyrir verkið Bankster, útgefandi Ormstunga

Gyrðir Elíasson fyrir verkið Milli trjánna, útgefandi Uppheimar

Steinunn Sigurðardóttir fyrir verkið Góði Elskhuginn, útgefandi Bjartur

Vilborg Davíðsdóttir fyrir verkið Auður, útgefandi Mál og menning

Í flokki fræðibóka og bóka almenns efnis:

Árni Heimir Ingólfsson fyrir verkið Jón Leifs-Líf í tónum, útgefandi Mál og menning

Helgi Björnsson fyrir verkið Jöklar á Íslandi, útgefandi Bókaútgáfan Opna

Jón Karl Helgason fyrir verkið Mynd af Ragnari í Smára, útgefandi Bjartur

Kristín G. Guðnadóttir fyrir verkið Svavar Guðnason, útgefandi Bjartur

Þórdís Elva Þorvaldsdóttir fyrir verkið Á mannamáli. Ofbeldi á Íslandi, útgefandi JPV útgáfa






Fleiri fréttir

Sjá meira


×